Farið yfir tvo fundi hafnarstjórnar með útgerðarmönnum, vöruflytjendum og þjónustaðilum við Hafnarfjarðarhöfn
Hafnarstjórn
á hafnarskrifstofu
Ritari
- Már Sveinbjörnsson hafnarstjóri

Almenn erindi

1011392 – Átaksverkefni tengd hafnsækinni starfsemi.

Fundarnenn lýstu ánægju sinni með þessa fundarröð, góða mætingu og umræður og töldu að þetta gæti verið gott skref inn í framtíðina. Næsti fundur verður haldinn fimmtudaginn 17. febrúar í Turninum og þá verður ferðaþjónustufólki boðið.

1003282 – Vitinn, lóðamörk Vitastígs 12
Hafnarstjóri lagði fram greinargerð sína um lóðamörk nærri vitanum við Vitastíg.

Hafnarstjórn telur mjög mikilvægt að aðgengi að vitanum verði tryggt vegna menningarsögulegs gildi hans og jafnframt til að annast viðhald og eftirlit með honum.

1012138 – Lán frá Íslandsbanka til endurfjármögunar láns Bayerische Landesbank.
Lögð fram drög að lánssamningi milli Hafnarfjarðarhafnar og Íslandsbanka.

Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti lánasamning þennan og leggur til við Bæjarstjórn Hafnarfjarðar: ¨Bæjarstjórn Hafnarfjarðar heimilar Hafnarfjarðarhöfn að veðsetja eigur sínar samkvæmt fyrirliggjandi drögum að lánasamningi við Íslandsbanka.¨

0909217 – Fjárhagsáætlun, uppgjör og ársreikningur 2010
Lagðar fram upplýsingar úr rekstri hafnarinnar fyrir árið 2010

Lagt fram

11022265 – Afnot af Óseyrarbraut 27
Lögð fram ósk Rein sf um skammtímaleigu á hluta Óseyrarbrautar 27.

Hafnarsstjórn heimilar Rein sf afnot af lóðinni við Óseyrarbraut 27 í samræmi við skilmála, sem hafnarstjóri kynnti á fundinum.