Lagt fram bréf frá Sjúkraþjálfaranum ehf. þar sem farið er fram á fjárhagslegan stuðning fræðsluþjónustu vegna samstarfs Sjúkraþjálfarans ehf. og leikskóla Hafnarfjarðarbæjar.
Fræðsluráð
í Krosseyri, Linnetsstíg 3
Mætt til fundar
- Eyjólfur Sæmundsson formaður
- Helena Mjöll Jóhannsdóttir aðalmaður
- Gestur Svavarsson aðalmaður
- Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir aðalmaður
- Helga Ingólfsdóttir aðalmaður
Ritari
- Guðrún Guðmundsdóttir ritari
-
Almenn erindi
-
1211010 – Sjúkraþjálfun í leikskólum
Fræðsluráð leggur þunga áherslu á að ríkið standi áfram að fjármögnun verkefnisins en samþykkir jafnframt að vísa erindi Sjúkraþjálfarans ehf. til vinnslu fjárhagsáætlunargerðar sviðsins 2013.$line$$line$Bókun frá fulltrúa foreldraráðs leikskóla:$line$Foreldraráð leikskóla í Hafnarfirði telur mikilvægt að jákvætt verði tekið í beiðni Sjúkraþjálfarans ehf. þar sem þessi þjónusta er mikilvæg fyrir leikskólabörn.
-
0901064 – Lög og reglugerðir, fræðslusvið
Lagður fram tölvupóstur frá Sambandi ísl. sveitarfélaga um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins – verklagsreglur, þjóðarsáttmála gegn einelti, fagráð gegn einelti og fleira.
Lagt fram til kynningar.$line$Fræðsluráð leggur áherslu á að „Dagur gegn einelti“ fái verðuga umfjöllun meðal skólasamfélagsins í Hafnarfirði.
-
0801395 – Skólastefna Hafnarfjarðar
Skipað í stýrihóp vegna endurskoðunar skólastefnu Hafnarfjarðar. Tekið fyrir að nýju frá síðasta fundi ráðsins.
Fræðsluráð samþykkir framlagt erindisbréf vegna starfa stýrihóps um endurskoðun skólastefnu Hafnarfjarðar. $line$Eyjólfur Sæmundsson, fulltrúi Samfylkingar, Gestur Svavarsson, fulltrúi Vinstri grænna og Helga Ingólfsdóttir, fulltrúi Sjálfsætðiflokks voru skipuð í stýrihópinn.
-
1111268 – Fjárhagsáætlun fræðsluþjónustu 2012
Rekstrarstjóri fræðsluþjónustu kynnir níu mánaða uppgjör.
Fram kom að rekstur sviðsins er innan áætlunar og fagnar fræðsluráð þeim árangri stjórnenda og starfsmanna á sviðinu.
-
1205312 – Víðivellir, skógardeild
Víðivellir voru tilnefndir til nýsköpunarverðlauna í opinberum rekstri fyrir skógardeild í Kaldárseli. Verkefnið var meðal 18 tilnefninga af 62 sem bárust og voru valin til kynningar við afhendingu nýsköpunarverðlauna 2012.$line$Leikskólastjóri Víðivalla mætti til fundarins og fór með kynninguna fyrir fræðsluráð.
Árdís Grétarsdóttir, leikskólastjóri á Víðvöllum, kynnti verkefnið. Fræðsluráð óskar stjórnendum og starfsfólki á Víðivöllum til hamingju með verkefnið og þakkar fyrir frábært starf.
-