Tekið tið umföllunar tillögur Ungmennaráðs Hafnarfjarðar frá Ungmennaþing 21. mars 2012. Til fundarins mæti Jóhanna M Sigurðardóttir frá Unglingaráði.
Umhverfis- og framkvæmdaráð
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Mætt til fundar
- Margrét Gaua Magnúsdóttir formaður
- Hörður Þorsteinsson aðalmaður
- Helga Ingólfsdóttir aðalmaður
- Lára Janusdóttir varamaður
Ritari
- Helga Stefánsdóttir
-
Almenn erindi
-
1106161 – Tillögur Ungmennaráðs Hafnarfjarðar.
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar fulltrúa Ungmennaráðs Hafnarfjarðar fyrir kynninguna og beinum tillögum þeirra til sviðsins til úrvinnslu.
-
1205167 – Gönguleiðir fyrir eldri borgara og staðsetning bekkja
Lagt fram bréf frá Öldungaráði Hafnarfjarðar, Félagi eldri borgara í Hafnarfirði og Félagi íslenskra sjúkraþjálfara dags. 18. sept 2012 varðandi verkefnið „Brúkum bekkinn“.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að leggja 10 bekki til verkefnisins.
-
1110136 – Hellisgerði - hollvinasamtök
Lagt fram erindi Hollvinafélags Hellisgerði dags 12. ágúst 2012 varðandi framtíð Bonsai-garðsins. Björn B Hilmarsson mætti til fundarins og fór yfir málið.
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar erindnu til Menningar- og ferðamálanefndar til umsagnar varðandi framtíð Bonsai garðsins.
-
0702036 – Íþróttahús Kaplakrika, framkvæmdir
Á fundinn mætir Erlendur Árni Hjálmarsson verkefnisstjóri fór yfir stöðu mál. Lagt var fram minnisblað.
Fundargerðir
-
0702036 – Íþróttahús Kaplakrika, framkvæmdir
Lögð fram fundargerð vegna Bygginganefndar nr.103 og verkfundagerðir nr.4 og nr. 5 vegna lokun Frjálsíþróttahúss
Lagt fram.
-
1201182 – Sorpa bs, fundargerðir 2012
Lögð fram fundargerð nr. 304.
Lagt fram.
-