Lögð fram ályktun landsfundarins.
Bæjarráð
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Mætt til fundar
- Gunnar Axel Axelsson formaður
- Sigríður Björk Jónsdóttir aðalmaður
- Rósa Guðbjartsdóttir aðalmaður
- Kristinn Andersen aðalmaður
Ritari
- Jóna Ósk Guðjónsdóttir ritari bæjarráðs
-
Almenn erindi
-
1209020 – Landsfundur jafnréttisnefnda 2012
Lagt fram.
-
1209289 – Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2012
Lagður fram tölvupóstur Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 10. september 2012 þar sem boðað er til fjármálaráðstefnu sveitararfélaganna þann 27. og 28. september nk.
Lagt fram.
-
1209063 – Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, ársfundur 2012
Lagt fram fundarboð Jöfnfunarsjóðs sveitarfélaga dags. 3.september 2012 þar sem boðað er til ársfundar sjóðsins 26. september nk.
Lagt fram.
-
1208049 – Dalsás 2-6, kaup á byggingarrétti
Lagt fram erindi Sigurbergs Guðjónssonar hdl f.h. Vélaverkstæðis Hjalta Einarssonar dags. 14. september 2012 þar sem óskað er eftir heimild til að veðsetja lóðina.
Bæjarráð samþykkir erindið.
-
1209297 – Fasteignagjöld 2012, afsláttur
Lagt fram yfirlit yfir afslátt á fasteignagjöldum 2012. Óveruleg breyting er á milli ára. $line$Fjármálastjóri gerði grein fyrir yfirlitinu.
Lagt fram til kynningar.
-
1208427 – Fatlaðir, búsetumál
Lagt fram minnisblað um húsnæðisþörf og mögulegar leiðir. Minnisblaðið var til umfjöllunar á fundi fjölskylduráðs 5. september sem vísaði því til bæjarráðs.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu og skila tillögum á bæjrráðsfundi 18. október nk.
-
1206124 – Fundargerðir, reglur um fylgiskjöl
Vakin athygli á kynningarfundum vegna ofangreindra reglna.
Til kynningar.
-
1209311 – Hjúkrunarheimili á Völlum, undirbúningur
Lögð fram drög að erindisbréf fyrir starfshópinn.$line$Tilnefnt verður í starfshópinn á næsta fundi.
Lagt fram
-
1209339 – Sjálfstæðisflokkurinn, fyrirspurn bæjarráð 20.9.
Lögð fram fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins send í tölvupósti 18. 9. sl. um skil Hafnarfjarðarbæjar gagnvart helstu lánadrottnum og viðskiptamönnum.$line$Fjármálastjóri mætti á fundinn og lagði fram svar við framkominni fyrirspurn og gerði grein fyrir henni.
Lagt fram til kynningar.
-
1209363 – Sjálfstæðisflokkur, fyrirspurn í bæjarráði 20.9.
Lögð fram eftirfarandi fyrirspurn bæjaráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:$line$“Meirihluti bæjarráðs samþykkti á fundi sínum 6. sept .sl. að draga til baka launalækkanir frá árinu 2009, hjá tilteknum hópi starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar Óskað er eftir svörum við eftirfarandi spurningum:$line$ $line$- Hvers vegna var ekki ákveðið að draga launalækkanir eða kjaraskerðingar hjá öllum starfsmönnum bæjarins til baka?$line$ $line$- Má vænta frekari breytinga á launum og kjörum starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar á næstunni í því skyni að gæta jafnræðis á meðal starfsmanna bæjarins?“$line$
Lagt fram.
Umsóknir
-
1209262 – Álfhella 17, fyrirspurn um lóðarstækkun
Lögð fram fyrirspurn Slysavarnarfélagsins Landsbjargar send í tölvupósti dags. 13. september 2012 varðandi lóðarstækkun við ofangreinda lóð.
Bæjarráð óskar erftir umsögn skipulags- og byggingarfulltrúa og jafnframt nánari upplýsingum um byggingaráform.
Fundargerðir
-
1201183 – Strætó bs, fundargerðir 2012
Lagðar fram fundargerðir stjórnar Strætó bs frá 29. júní og 31. ágúst sl.
Lagt fram til kynningar.
-
1201185 – Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, fundargerðir 2012
Lögð fram fundargerð heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 27. ágúst sl.
Lagt fram til kynningar.
-
1209004F – Hafnarstjórn - 1413
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 18. september sl.
Lagt fram til kynningar.
-