Á fundi bæjarastjórnar Hafnarfjarðar 27. júní sl. hlutu eftirtaldir kosningu í fræðsluráð:$line$Aðalmenn:$line$Eyjólfur Þór Sæmundsson, formaður$line$Helena Mjöll Jóhannsdóttir$line$Gestur Svavarsson$line$Helga Ingólfsdóttir$line$Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir$line$$line$Varamenn:$line$Friðþjófur Karlsson$line$Dagbjört Gunnarsdóttir$line$Sigurður Magnússon$line$Halldóra Björk Jónsdóttir$line$Þóroddur Skaptason$line$$line$Kosning varaformanns:
Fræðsluráð
í Krosseyri, Linnetsstíg 3
Mætt til fundar
- Eyjólfur Sæmundsson formaður
- Helena Mjöll Jóhannsdóttir aðalmaður
- Gestur Svavarsson aðalmaður
- Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir aðalmaður
- Helga Ingólfsdóttir aðalmaður
Ritari
- Guðrún Guðmundsdóttir ritari
-
Almenn erindi
-
1006187 – Ráð og nefndir 2010-2014, kosningar
Formaður býður nýtt ráð velkomið til starfa og fundarmenn kynna sig. $line$Samþykkt var samhljóða að Gestur Svavarsson yrði varaformaður fræðsluráðs.
-
1206323 – Foreldraráð leikskólabarna - fyrirspurn
Lögð fram svör við fyrirspurn foreldraráðs leikskóla Hafnarfjarðar frá 20. júní sl.$line$Munnleg svör voru gefin á fundi fræðsluráðs 25. júní.
Þróunarfulltrúi leikskóla fór yfir svörin.
-
1208235 – Leikskólabyjun,staðan
Þróunarfulltrúi leikskóla gerði grein fyrir stöðunni í leikskólamálum.
-
0808128 – Hagir og líðan ungs fólks í Hafnarfirði, niðurstöður rannsókna
Geir Bjarnason, forvarnarfulltrúi kynnti niðurstöður könnunar á högum og líðan nemenda $line$8. – 10. bekkja í Hafnarfirði 2012.
Geir þakkað fyrir hans kynningu á niðurstöðum könnunarinnar.$line$Fræðsluráð óskar eftir upplýsingum um hvort hægt sé að fá ítarlegri upplýsingar annars staðar frá um líðan og hagi nemenda í Hafnarfirði.
-
1208099 – Áslandsskóli, tómstundamiðstöð (félagsmiðstöð/frístundaheimili)
Lagt fram bréf, dags. 15. júní frá skólastjóra Áslandsskóla þar sem hann óskar eftir að gerð verði tilraun í Áslandsskóla á næsta skólaári með þeim hætti að starfsemi heilsdagsskóla og félagsmiðstöðvar verði færð undir skólastjóra Áslandsskóla.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins óska bókað:$line$Starfsemi heilsdagsskóla er mikilvægur þáttur í skólastarfi yngstu nemenda. Sú ráðstöfun að flytja forræði heilsdagsskóla yfir til íþrótta- og tómstundaráðs (ÍTH) síðastliðið haust hefur mælst ákaflega misjafnlega fyrir og valdið verulegri röskun á högum nemenda í mörgum tilfellum. Ljóst er að undirbúningur var ekki nægilega vandaður og óljóst hvort fjárhagsleg hagræðing sem stefnt var að hafi náðst. Sjálfstæðismenn taka jákvætt í erindið enda er samhljómur í erindinu við málflutning fulltrúa minnihlutans sem lögðu til á síðasta ári að hægar yrði farið í sakirnar og gerð yrði tilraun í einum skóla til reynslu varðandi flutning málaflokksins.$line$Helga Ingólfsdóttir (sign)$line$Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir (sign)
-
0704184 – Áslandsskóli, húsnæðismál
Sviðsstjóri gerði grein fyrir stöðu mála.
-
1105363 – Aðalnámskrár grunn- og leikskóla
Lögð fram drög að greinanámskrám.$line$Frestur til athugasemda er til 7. september.$line$$line$Vakin er athygli á því að drög að greinanámskrám eru nú aðgengileg inni á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins til yfirlesturs og athugasemda til 7. september.$line$ http://www.menntamalaraduneyti.is/utgefid-efni/namskrar/namskrardrog/
Fræðsluráð felur starfsfólki á fræðslusviði að gera drög að umsögn til mennta- og menningarmálaráðuneytisins sem lögð verði fram á næsta fundi ráðsins.
-
1206124 – Bæjarráðsfundir
Lagðar fram reglur sem samþykktar voru á fundi bæjarráðs 9. ágúst sl. um birtingu gagna með fundargerðum.
-
1208216 – Fjárhagsáætlun fræðslusviðs 2013
Vegna þessa liðar mætti rekstrarstjóri fræðsluþjónustu og fór yfir tímasetningar vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2013.
-