Tekið fyrir að nýju. $line$$line$Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar: „Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir deiliskipulag fyrir Norðurbæ Hafnarfjarðar og að afgreiðslu verði lokið í samræmi við 41. gr. laga nr. 123/2010.“
Bæjarráð
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Mætt til fundar
- Gunnar Axel Axelsson formaður
- Rósa Guðbjartsdóttir aðalmaður
- Kristinn Andersen aðalmaður
- Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir varamaður
- Margrét Gaua Magnúsdóttir varamaður
Ritari
- Jóna Ósk Guðjónsdóttir ritari bæjarráðs
-
Almenn erindi
-
1007025 – Norðurbærinn uppfærsla deiliskipulags
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi fyrir Norðurbæ.
-
1206124 – Bæjarráðsfundir
Tekin fyrir að nýju drög að reglum um birtingu gagna með fundargerðum.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að reglum og jafnframt að þær taki gildi frá 1. október nk.
Umsóknir
-
1207274 – Fyrirspurn um áfangaskiptingu gatnagerðargjalda, hesthúsalóð
Lögð fram fyrirspurn Darra Gunnarssonar send í netpósti 26.7.2012 varðandi lóðarverð á hesthúsalóðum.
Bæjarráð vísar erindinu til nánari skoðunar hjá bæjarstjóra.
-
1011004 – Gasfélagið ehf., framlenging lóðarleigusamnings
Lögð fram endurnýjuð umsókn Gasfélagsins ehf send í netpósti 3.8.2012 um framlengingu á lóðarleigusamningi. $line$Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við erindið en deiliskipulag svæðisins hefur öðlast gildi.
Gunnar Axel Axelsson vakti athygli á vanhæfi sínu sem bæjarráð samþykkti og vék hann síðan af fundi. $line$$line$Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir að framlengja lóðarleigusamning Gasfélagsins ehf um 25 ár eða til ársins 2036.
-
Þarf að taka upp aftur þar sem ekki var búið að staðfesta aðalskiplagið.