Fjölskylduráð
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Mætt til fundar
- Valdimar Víðisson formaður
- Helga Ingólfsdóttir varaformaður
- Guðbjörg Oddný Jónasdóttir aðalmaður
- Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður
- Árni Stefán Guðjónsson áheyrnarfulltrúi
- Hulda Sólveig Jóhannsdóttir áheyrnarfulltrúi
- Sigurður Þórður Ragnarsson aðalmaður
Einnig sat Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri fundinn.
Ritari
- Kristrún Hafsteinsdóttir ritari fjölskylduráðs
Einnig sat Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri fundinn.
-
Almenn erindi
-
1806356 – Fjölgun úrræða fyrir fólk með heilabilun
Í ágúst 2018 lýsti fjölskylduráð Hafnarfjarðar yfir áhyggjum sínum af löngum biðlistum í dagdvöl fyrir fólk með heilabilunarsjúkdóma. Ákveðið var að stofna starsfhóp sem hafði það eina verkefni að finna húsnæði í Hafnarfirði fyrir dagdvöl. Starfshópurinn skilaði af sér niðurstöðum í nóvember sl. Ákveðið var að taka á leigu rými í Drafnarhúsinu. Í Drafnarhúsinu er nú þegar rekin dagdvöl fyrir fólk með heilabilunarsjúkdóma og þetta nýja rými yrði því viðbót við þá starfsemi. Í þessu nýja rými yrði pláss fyrir 10 ? 12 einstaklinga. Á höfuðborgarsvæðinu eru 163 á biðlista eftir dagdvöl og 26 af þeim bíða eingöngu eftir Drafnarhúsi. Með þessu nýja rými hefðum við stytt biðlista í Drafnarhúsinu um tæplega helming. Í nóvember var sent bréf á heilbrigðisráðuneytið þar sem látið var vita að Hafnarfjarðarbær væri tilbúin með rými fyrir dagdvöl fyrir 10 ? 12 einstaklinga og óskað var eftir fjármagni sem ríkið á að greiða. Í desember barst svar frá ráðuneytinu þar sem erindinu var hafnað.
Sveitarfélög eru ekki skuldbundin til þess að útvega húsnæði en í ljósi vandans ákvað Hafnarfjarðarbær að fara í þá vinnu að finna húsnæði svo að hægt væri að koma til móts við þá sem eru á biðlista.
Fjölskylduráð harmar þessa ákvörðun ráðuneytisins og fer fram á það að hún verði endurskoðuð. -
1704017 – Aldraðir, heilsuefling
Fjölskylduráð fagnar þeim árangri sem hefur náðst í þessu verkefni og leggur áherslu á að áfram verði stutt við heilsueflingu eldri borgara.
-
0701055 – Félagslegar leiguíbúðir
Sviðstjóra falið að kanna möguleika að að framleigja íbúðir til þess að stytta biðlista í félagslega íbúðakerfinu. Áfram verður unnið að því að fjölga íbúðum í kerfinu með kaupum á íbúðum en á fjárhagsáætlun ársins 2019 er gert ráð fyrir 500 miljónum til málaflokksins.
-
1901216 – Málefni erlendra íbúa
Sviðsstjóra falið að vinna starfslýsingu fyrir verkefnastjóra í málefnum innflytjenda.
-
1503172 – Ferðaþjónusta fatlaðs fólks
Frestað.
-
18129575 – Atvinna með stuðningi
Lagt fram.
-
1901204 – Styrkir 2019
Lagt fram.
-
1811191 – Sjónarhóll ráðgjafarmiðstöð ses., styrkumsókn
Fjölskylduráð samþykkir að styrkja Sjónarhól um 500.000 kr.
-