Lögð fram tillaga að samkomulagi milli Hafnarfjarðarhafnar og Hlaðbæjar Colas um uppgjör vegna jarðvegsskipta á hluta lóðar undir byggingarreit að Óseyrarbraut 20.
Hafnarstjórn
9. janúar 2019 kl. 10:00
á hafnarskrifstofu
Fundur
1541
Mætt til fundar
- Kristín María Thoroddsen formaður
- Magnús Ægir Magnússon aðalmaður
- Jón Grétar Þórsson aðalmaður
- Jón Ingi Hákonarson aðalmaður
- Guðmundur Fylkisson varamaður
Ritari
- Lúðvík Geirsson hafnarstjóri
-
Almenn erindi
-
1712296 – Óseyrarbraut 16 og 20, endurnýjun lóðarleigusamninga
Hafnarstjórn samþykkir fyrirliggjandi samkomulag.
Kynningar
-
1901032 – Hafnarfjarðarhöfn 110 ára
Þann 1. janúar sl. voru 110 ár liðin frá því að fyrsta hafnarreglugerð fyrir Hafnarfjaðarhöfn tók gildi í ársbyrjun 1909.
Hafnarstjórn mun minnast þessara tímamóta m.a. með mynda-og sögusýningu á strandstígnum í samvinnu við Byggðasafnið og hefja hönnun og undirbúning að endurgerð Norðurgarðsins sem var byggður á árunum 1941-45.
-
18129655 – Heimasíða hafnarinnar endurnýjun
Hafnarstjóri skýrði frá vinnu við endurnýjun og uppfærslu á heimasíðu Hafnarfjarðarhafnar.
-
1806317 – Uppbygging á hafnarsvæðinu
Lögð fram fundargerð samráðsnefdnar frá 7. janúar sl. og jafnframt farið yfir undirbúning fyrir kynningar- og samráðsfundi vegna rammaskipulagsvinnu sem haldnir verða 21. janúar n.k.
-