Lækur – athvarf fyrir einstaklinga með geðrænar áskoranir

Athvarfið flutti nýverið í Staðarberg 6 og er aðstaðan nú orðin hin glæsilegasta. Eitt helsta hlutverk Lækjar er að vera öruggur og góður vettvangur fyrir fólk með það að markmiði að draga úr félagslegri einangrun, efla samskipti og styrkja andlega sem og líkamlega heilsu, þannig að allir fái tækifæri til að njóta sín. Á Læk er boðið upp á morgunmat, hádegismat og kaffi gegn vægu gjaldi.

Afþreying og fræðsla á jafningjagrundvelli

Lækur er ekki hefðbundinn meðferðarstaður eða stofnun, heldur vettvangur þar sem áhersla er lögð á að skapa heimilislegt andrúmsloft á jafningjagrundvelli.

Boðið er upp á ýmiss konar afþreyingu og fræðslu í daglegu starfi athvarfsins, þar sem megináherslan er á hreyfingu, slökun, samskipti, samveru og spilamennsku. Þjónustan er notendastýrð, þar með hafa gestir áhrif á mótun starfseminnar.

Við höfum einnig lagt metnað í að koma upp matjurtagarði þar sem við rækta grænmeti sem nýtist í hádegismatinn. Auk þess höfum við tvær hænur í bakgarðinum sem eru í umsjá gesta.

Áhersla verður lögð á að auka enn frekar fjölbreytileikann í starfseminni, enda er ríkur vilji fyrir því að allir geti fundið eitthvað áhugavert við sitt hæfi, með sköpun og hönnun að leiðarljósi.

Fyrir áhugasama þá er hægt að fylgja okkur inn á Instagram og Facebook.

Starfsfólk og aðsetur

Forstöðumaður Lækjar er Brynja Rut Vilhjálmsdóttir, og með henni starfa Dagný Rós Stefánsdóttir og Steinar Gíslason.

Starfsfólkið tekur fagnandi á móti öllum áhugasömum frá kl. 9–16 alla virka daga, nema á föstudögum, þegar opnað er kl. 10.

Ábendingagátt