Sorp flokkun

Framkvæmd og fyrirkomulag innleiðingar í Hafnarfirði

Um miðjan maí hófst innleiðing á nýju sorpflokkunarkerfi í Hafnarfirði, líkt og á höfuðborgarsvæðinu öllu, þar sem fjórum úrgangsflokkum verður framvegis safnað við hvert heimili bæjarins lögum samkvæmt. Með nýju flokkunarkerfi er stigið mjög stórt skref í umhverfismálum sveitarfélaganna.

Spurningum svarað á kynningarfundi þann 14. júní kl. 17

Eðli málsins samkvæmt þá kvikna ýmsar spurningar við innleiðingu á svo stóru verkefni. Verkefnastjórar innleiðingar og fulltrúar sveitarfélagsins í umhverfis- og framkvæmdaráði munu með léttri kynningu og spjalli miðvikudaginn 14. júní kl. 17 fara yfir framkvæmd og fyrirkomulag innleiðingarinnar í Hafnarfirði og svara spurningum íbúa. Fundurinn verður haldinn hjá umhverfis- og skipulagssviði að Norðurhellu 2 í Hafnarfirði.

Öll áhugasöm eru hvött til að mæta til fundar.

Ábendingar og nánari upplýsingar

Einnig er hægt að senda fyrirspurnir varðandi framkvæmd og fyrirkomulag í gegnum ábendingagátt sveitarfélagsins og á netfangið: hafnarfjordur@hafnarfjordur.is

Ábendingagátt