Skógræktarfélag Hafnafjarðar býður til fjölskyldudags í Höfðaskógi, við Gróðrarstöðina Þöll Kaldárselsvegi, laugardaginn 24.júní. Höfðaskógur og nágrenni Hvaleyrarvatns er einstakt útivistarsvæði í bakgarði Hafnafjarðar.
Í boði verður frá 14:00-17:00
- Hoppukastali.
- Grillaðar veitingar í boði hússins (einnig vegan)
- „Pop up“ kaffihús. Fríar kaffiveitingar frá Pallett Kaffikompaní.
- Andlitsmálning milli kl. 14.00 – 16.00.
- Kl. 14.30: Skógarganga fyrir þá sem vilja heimsækja skóginn: Leiðsögumaður er Jónatan Garðarsson. Gangan tekur um eina og hálfa klukkustund.
- Kl. 14.20: Ratleikur hefst. Vinningshafar eru dregnir út kl. 16.30.
- Listahópur Vinnuskóla Hafnarfjarðar og Larpið kíkja í heimsókn.
- Haffi Haff sér um tónlistina!
Bílastæði: Athugið að bílastæðin á hlaðinu verða lokuð vegna hoppukastala og fjölda barna. Vinsamlegast leggið við hliðið eða á bílastæðinu sem er við næstu beygju við Þöll (örlítið lengra) sem heitir Værðarstígur.
Hjartanlega velkomin!