Komdu með í göngu!

Kolbrún Kristínardóttir, barnasjúkraþjálfari leiðir göngu á Stórhöfða fyrir börn og foreldra. Stórhöfði er rétt sunnan við Hvaleyrarvatn. þetta er ljúft og þægilegt fell fyrir uppgöngu en með mikið og gott útsýni og því tilvalið fyrir fjölskyldugöngu. Leiðin er um 3 km í heildina og hækkunin rétt um 100 metrar. Endilega takið með smá nesti til að fylla á litla orkutanka á leiðinni og fá sér smá hressingu á toppnum. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir!

Gengið verður frá bílastæði við vesturenda Hvaleyrarvatns (nær Völlum). Vakin er sérstök athygli á því að afleggjari að Hvaleyrarvatni frá Kaldárselsvegi er lokaður vegna malbikunarframkvæmda þegar gangan hefst. Þátttakendur í göngunni þurfa því að koma að Hvaleyrarvatni frá Völlum.

Menningar- og heilsugöngur 2023

Í sumar er boðið upp á bæjargöngur með leiðsögn alla miðvikudaga. Göngurnar eru samstarfsverkefni Bókasafns Hafnarfjarðar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Hafnarborgar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Flestar göngur taka um klukkustund.

Komdu út að ganga í sumar!

Menningar- og heilsugöngur í Hafnarfirði sumarið 2023

Ábendingagátt