Komdu með í göngu!
Valgerður Hróðmarsdóttir leiðir göngu meðfram Kaldá og umhverfinu þar. Gengið verður frá bílastæðinu við Helgafell og niður að enda Kaldár þar sem gaman er að sjá hvernig hún hverfur ofan í hraunið. Þaðan verður gengið kringum Fremstahöfða og síðan meðfram Gjánum á bakaleiðinni ef tími gefst.
Menningar- og heilsugöngur 2023
Í sumar er boðið upp á bæjargöngur með leiðsögn alla miðvikudaga. Göngurnar eru samstarfsverkefni Bókasafns Hafnarfjarðar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Hafnarborgar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Flestar göngur taka um klukkustund.
Komdu út að ganga í sumar!
Menningar- og heilsugöngur í Hafnarfirði sumarið 2023