Vetrarhátíð verður haldin dagana 1.–3. febrúar og fer hátíðin fram í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Þessi hátíð ljóss og myrkurs samanstendur af þremur meginstoðum: Safnanótt, Sundlauganótt og ljóslistaverkum. Boðið er upp á yfir 150 viðburði þar sem fjöldi listamanna tekur þátt í að skapa einstaka stemningu í borginni. Frítt er inn á alla viðburði á Vetrarhátíð.

Sundlauganótt – fimmtudaginn 1. febrúar kl. 18-22

Sundlauganótt er haldin í Ásvallalaug með ljósi, myrkri og gleði, opinni sundæfingu, bombukeppni og sundlaugabingói með Evu Ruzu.

  • Kl.19:30 og 21. Bombukeppni – hver nær stærstu gusunni?
  • Kl.20. Opin æfing hjá Görpunum í Sundfélagi Hafnarfjarðar
  • Kl.20. BINGÓ með Evu Ruzu

Safnanótt – föstudaginn 2. febrúar kl. 18-22

Bókasafnið, Byggðasafnið og Hafnarborg opna dyr sínar fram á kvöld og bjóða upp á skemmtilega dagskrá á Safnanótt föstudaginn 2. febrúar frá kl. 18-22.

Bókasafn Hafnarfjarðar

  • Kl. 18:00 Barnatónleikar með Mæju litlu Jarðarberi.
  • Kl. 19.30 Galdratáknasmiðja með Otiliu Martin.
  • Kynningar á starfi safnsins, hljóðsaga, opið í djammhorninu, kynning á tækjakosti. 

Byggðasafn Hafnarfjarðar 

  • Kl. 18-22 Pakkhúsið, Sívertsenhús og Beggubúð opin.
  • Kl. 18-22 Ratleikur fyrir börn.
  • Kl. 18-22 Annríki sýnir baðstofuverk í Sívertsens-húsi.
  • Kl. 19:30 Dagrún Ósk Jónsdóttir, þjóðfræðingur, flytur fyrirlesturinn „Máninn og myrkrið í íslenskum þjóðsögum“. 
  • Kl. 20:45 Listahópurinn Klassík flytur íslenska og erlenda tónlist.

Hafnarborg 

  • Kl. 18:00-22:00 Yfirstandandi sýningar: Jónína Guðnadóttir – Flæðarmál og Þór Sigurþórsson – Vísar. 
  • Kl. 18:00 Síðdegistónar á Safnanótt: Tríó Halla Guðmunds – Tangó fyrir einn.
  • Kl. 19:30 Nidra-hugleiðsla: í tengslum við sýningu Þórs Sigurþórssonar, Vísa, verður boðið upp á leidda hugleiðslu af jógakennara þar sem hugað verður að jarðtengingu, tima og innri ró. Viðburðurinn hentar gestum á öllum aldri.  
  • Kl. 20:30 Leiðsögn um sýningar safnsins með Aldísi Arnardóttur, forstöðumanni Hafnarborgar.

Góða skemmtun og gleðilega Vetrarhátíð heima í Hafnarfirði!

Ábendingagátt