Nýtt heilsueflandi verkefni fyrir 60 ára og eldri í FH

Frísk í FH er heilsueflandi verkefni fyrir einstaklinga 60 ára og eldri. Starfsemi Frísk í FH verður byggð í kringum hópþjálfun þar sem þátttakendur fá tækifæri á því að stunda líkamsrækt í skemmtilegum félagsskap undir handleiðslu fagmenntarða þjálfara.

Markviss og skipulögð þjálfun

Um er að ræða markvissa og skipulagða þjálfun þar sem sem þjálfarar útbúa 6 vikna æfingaráætlanir sem þeir aðlaga eftir getu hvers og eins þátttakanda. Á æfingum verður lögð áhersla á styrktar-, þol-, liðleika- og jafnvægisæfingar. Ekki síður verður lögð áhersla á andlega og félagslega heilsu og verður starfsemin í heild sinni unnin með það að leiðarljósi. Æfingar munu fara fram 2x í viku fyrir hádegi á miðviku- og föstudögum í styrktarsal FH í Kaplakrika.

Kynningarfundur 21. febrúar

Kynningarfundur verður haldinn í veislusal FH (sjónarhóli) miðvikudaginn 21. febrúar þar sem starfsemin verður kynnt og hægt verður að skrá sig. Sjá viðburð hér.
Stefnt er að vera með stutt 12 vikna námskeið strax nú á vorönn. Námskeiðið mun standa yfir frá 6.mars – 7.júní. Námskeiðsgjald eru 10.000 kr á mánuði og hægt verður að nýta frístundastyrk hafnarfjarðar fyrir alla 67 ára og eldri.
Ef þú hefur áhuga á að tryggja þér pláss strax er hægt að skrá sig hér en takmörkuð pláss verða á fyrsta námskeið: https://forms.office.com/r/xWtBRiYJx2
Ábendingagátt