Tillaga á vinnslustigi að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013 – 2025 vegna borteiga

Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 21. mars 2024 var samþykkt að tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013 – 2025 vegna borteiga, verði auglýst. Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 10. apríl var erindið samþykkt. Opið hús verður þriðjudaginn 7. maí kl. 11 -13 að Norðurhellu 2, 221 Hafnarfirði þar sem hægt verður að kynna sér tillögur að breytingum á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna Coda Terminal verkefnisins. Skilgreindir eru 8 iðnaðarsvæðisreitir fyrir borteiga vegna niðurdælingar og bindingar koldíoxíðs (CO2). Hægt verður að fá svör við spurningum sem tengjast þessari skipulagsgerð á umhverfis- og skipulagssviði.

Upplýsingar varðandi aðalskipulagsbreytinguna má nálgast á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar

Ábendingagátt