Forvitnileg sýning sem gæti vakið upp fortíðarþrá

Byggðasafn Hafnarfjarðar opnar nýja þemasýningu í forsal Pakkhússins að Vesturgötu 6, föstudaginn 7. júní kl. 17.  Sýningin ber heitið „Þorp verður bær, Hafnarfjörður 1960 – 1975. Sýningin fjallar um íbúafjölgun Hafnarfjarðar á árunum 1960 -1975, áhrifin og breytingarnar. Andi sjöunda og áttunda áratugarins mun svífa yfir sýningarrýmið þar sem stofa og unglingaherbergi hafa verið endurgerð í líkingu við blokkaríbúðirnar sem voru að byggjast upp á þessum tíma og ýmislegt forvitnilegt sem mun vekja upp fortíðarþrá gesta.

Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri, mun opna sýninguna með stuttu ávarpi. Léttar veitingar í boði og aðgangur að sjálfsögðu ókeypis.

Komdu á safn í sumar!

Í Byggðasafni Hafnarfjarðar er að finna sjö sýningar. Pakkhúsið, Sívertsen húsið, Bookless Bungalow, Siggubær, Beggubúð, Gúttó og á Strandstígnum.  Ókeypis aðgangur er á allar sýningar og opið frá kl. 11-17 alla daga vikunnar frá og með 1. júní til og með 31. ágúst.

Ábendingagátt