Við höfum sett saman skemmtidagskrá í Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug í tilefni Sundlauganætur á höfuðborgarsvæðinu! Já, nú verður gaman. Viðburðir fyrir fjölskylduna, einstaklinginn, eldri og yngri.

Suðurbæjarlaug – frítt frá 16-18

  • Kl. 17 – Síkátu zúmbínurnar stýra Aqua zumba
  • Mælt með því að koma með húfu eða sundhettu!

Andaleikarnir í Ásvallalaug – frítt frá 16-20 !

Gestir í Ásvallalaug fá að upplifa einstaka kvöldstund þar sem allskonar endur verða allsráðandi.

  • Andaleikarnir
    • Kl.17 og kl. 18 – Bombukeppni – Hver nær stærstu gusunni?
    • Kl.17:30 og kl. 18:30 – Dýfingakeppni – Hver nær öndunum á botni laugarinnar?
    • Verðlaun í boði!
  • Kl.16 – 20 – Andrés Önd á risaskjá!

Frítt verður í sund frá klukkan 16:00 og í fjölmörgum sundlaugum höfuðborgarsvæðisins. Sundlauganótt er hluti af Vetrarhátíð – www.vetrarhatid.is – sem stendur yfir dagana 6. – 9. febrúar. Öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu taka þátt í hátíðinni. Uppákomur í laugunum verða af margvíslegum toga og munu gestir fá að upplifa einstaka og óvenjulega kvöldstund í mögnuðu myrkri. Ertu ekki örugglega til í góða skemmtun? Öll velkomin.

Ábendingagátt