Fræðslufundur fyrir foreldra, forsjáraðila og öll áhugasöm

Heilsulausnir fara í alla 8. bekki grunnskóla Hafnarfjarðar með vímuefnafræðsluna VELDU. Vímuefnafræðslan hefur það að markmiði að upplýsa um skaðsemi, ávanabindingu og styrkja sjálfsmynd. Hjúkrunarfræðingar sinna fræðslunni og er allt fræðsluefni byggt á gagnreyndum og nýlegum heimildum. Í ár viljum við vekja sérstaka athygli á þessari fræðslu sem boðið er uppá ásamt því að bjóða öllum foreldrum barna og ungmenna á unglingastigi  á fræðslufund um efnið.

Á fundinum munu Heilsulausnir segja okkur frá þeirri fræðslu sem ungt fólk fær en einnig gefa foreldrum góð ráð í samtalinu. Því fleiri sem við styrkjum í samtalinu við unga fólkið okkar því öflugri forvarnir. Stella Björg Kristinsdóttir, fagstjóri frístundastarfs og forvarna hjá Hafnarfjarðarbæ, fer yfir það hvað tölurnar eru að segja okkur og hvernig við getum enn betur stutt við unga fólkið okkar.

Tökum samtalið og fræðumst. Aðgangur ókeypis og öll áhugasöm velkomin.

Saman erum við þorpið – vertu með!

————————————–

Við erum þorpið

Þessi fundur er hluti af fundaröð Hafnarfjarðarbæjar og heilsubæjarins Hafnarfjarðar um málefni barna og ungmenna, líðan þeirra og öryggi.

Ábendingagátt