Ásvallalaug verður lokuð fimmtudaginn 7. ágústs vegna endurbóta og viðhalds. Gym heilsa verður þó opin.
Ásvallalaug lokuð 7. ágúst
Ásvallalaug, stærsta sundmiðstöð á landinu, verður lokuð fimmtudaginn 7. ágúst vegna endurbóta og viðhalds. Laugin bíður þín svo strax degi síðar. Gym heilsurækt verður opin þótt sundlaugin loki. Suðurbæjarlaug er opin.
Sundmiðstöðin í Ásvallalaug er ein sú stærsta á landinu eða um 6.000 m². Þar er einnig líkamsræktarstöðin GYM heilsa í 600 m² rými, Ásmegin sjúkraþjálfun og félagsaðstaða Sundfélags Hafnarfjarðar og Íþróttafélagsins Fjarðar.