Afar góð mæting á fund um tæknilausnir fyrir börnin
Vel á annað hundrað foreldra mættu á fyrirlestur Jóhönnu Birnu Bjartmarsdóttur þar sem hún fór yfir hvernig nýta megi tæknina til að einfalda sér námið.
Leiðir fyrir börnin til að læra námsefnið
Vel á annað hundrað foreldra mættu á fyrirlestur Jóhönnu Birnu Bjartmarsdóttur þar sem hún fór yfir hvernig nýta megi tæknina til að einfalda sér námið. Já, þétt var setið í Bæjarbíói.
Forritin Málfríður, Memrise, Rasmus, Notion, Brainrot komu við sögu og sjá mátti að saga Jóhönnu Birnu og hvernig henni tókst að tileinka sér nám í hinum bandaríska Flórídaháskóla án menntaskóla hér heima hreyfði við foreldrunum.
Börnin efstu bekkja fræðst um forritin
Jóhanna hefur nú heimsótt flesta grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar allt frá miðjum febrúarmánuði. Hún hefur haldið innblásinn fyrirlestur fyrir krakkana um tæknilausnir sem þau geta nýtt til að einfalda sér námið. Einnig fundað með kennurum.
Jóhanna lýsti fyrir foreldrunum óbeinum hindrunum sem börnin verða fyrir í skólanum. Hún ræddi við þá rétt eins og börnin um íslenska skólakerfið og sagði hversu mikilvægt henni fyndist að horfa á skólann sem vandann en ekki nemandann þegar kæmi að námsörðugleikum. Mikilvægt væri að aðlaga kennsluna að getu hvers og eins.
Mörg skilaboð á æðislegu kvöldi
„Mér fannst þetta æðislegt kvöld,“ segir Jóhanna Birna. „Ég hef fengið mörg skilaboð og ég er ótrúlega glöð, með hlýju í hjarta. Sjötíu manns fylltu svo út spurningalistann í lok fyrirlestursins. Allir sem eiga nemendur í Hafnarfirði segja að ráðin hafi nýst barninu ótrúlega mikið.“
Frábært hafi verið að finna að ólík tólin virtust henta einhverjum í salnum. Þá hafi glatt hana að sjá fólk koma víða að; meðal annars frá Selfossi og víðar. Hún hafi nú fengið fyrirspurnir frá fleiri sveitarfélögum.
Vill kynna fyrir fleirum
Nú stefnir Jóhanna á að útskrifast úr mastersnámi sínu við Flórídaháskóla. Hún horfir einnig til nokkurra ráðstefna sem hún er bókið á. Hún vonar að íslenska menntakerfið grípi nú tækifærið og vinni markvisst að því að innleiða tæknilausnirnar sem hjálpartæki fyrir börn í skólum landsins.