Ánægja íbúa eykst

Fréttir

Ánægja íbúa í Hafnarfirði með þjónustu sveitarfélagsins eykst á milli ára samkvæmt niðurstöðum árlegrar þjónustukönnunar Gallup sem birtar voru á fundi bæjarráðs í morgun. Alls eru 91% íbúa í Hafnarfirði ánægðir með sveitarfélagið sem stað til að búa á.

Ánægja íbúa í Hafnarfirði með þjónustu sveitarfélagsins eykst á milli ára samkvæmt niðurstöðum árlegrar þjónustukönnunar Gallup sem birtar voru á fundi bæjarráðs í morgun. Alls eru 91% íbúa í Hafnarfirði ánægðir með sveitarfélagið sem stað til að búa á. Ánægja með þjónustu við barnafólk og eldri borgara eykst mest sem og með leikskóla- og menningarmál.

Niðurstöður þjónustukönnunar gefa hugmynd um ánægju íbúa með ákveðna þjónustuþætti sveitarfélagsins. Markmið könnunarinnar er að kanna ánægju með þjónustu stærstu sveitarfélaga landsins ásamt því að skoða breytingar frá fyrri mælingum. Flestir eru ánægðir með sveitarfélagið sitt sem stað til að búa á og er skor Hafnarfjarðarbæjar 4,4 af 5 mögulegum á kvarðanum 1-5. Sveitarfélagið hækkar eða stendur í stað í tólf þáttum af þrettán og þar af er marktækur munur til hækkunar á sjö þáttum milli ára, svo sem þáttum sem snúa að þjónustu við barnafjölskyldur, þjónustu við eldri borgara, hvernig sveitarfélagið sinnir menningarmálum og skipulagsmálum almennt í sveitarfélaginu.

Marktaekur-munur

Aðeins einn þáttur lækkar milli ára en það er ánægja með sorphirðu en vitað er að fjölmargir Hafnfirðingar bíða spenntir eftir að plastsöfnun hefjist við heimili sem stefnt er á að fari af stað 1. mars nk.

Mikil áhersla hefur verið lögð á markvissar aðgerðir í öllum málaflokkum síðustu mánuði og ár og því ánægjulegt að aðgerðir og framkvæmdir virðist vera að skila sér í upplifun og ánægju bæði notenda þjónustunnar og þeirra sem meta ánægju út frá umræðu og samtali við aðra. Hafnarfjörður kemur vel út í samanburði við önnur sveitarfélög, er í meðaltali eða rétt yfir meðaltali allra sveitarfélaganna en er undir meðaltali í aðeins tveimur þáttum. Þessi jákvæða niðurstaða undirstrikar jákvæðara viðhorf bæjarbúa til þjónustu sveitarfélagsins og er öllum hlutaðeigandi hvatning til að halda áfram á sömu braut. Bæjarráð Hafnarfjarðar fékk kynningu á niðurstöðum þjónustukönnunar á fundi ráðsins í morgun og hér er hægt er að nálgast niðurstöðurnar.

Sjá fundargerð bæjarráðs 11. janúar 2018

Ábendingagátt