Árlegt barnakóramót í Víðistaðakirkju á laugardag
Barnakóramót Hafnarfjarðar verður haldið laugardaginn 21. mars í Víðistaðakirkju. Mótið er tvískipt í yngri og eldri þátttakendur. Þau yngri kl. 12.30 og eldri kl. 16.30.
Barnakórar í Hafnarfirði
Kórbörn í Hafnarfirði hittast, kynnast, æfa saman og halda tónleika á Barnakóramóti Hafnarfjarðar sem verður haldið laugardaginn 21. mars í Víðistaðakirkju. Mótið er tvískipt í yngri og eldri þátttakendur.
Kórarnir sem koma fram eru:
- Barna- og Unglingakórar Hafnarfjarðarkirkju
- Barna- og unglingakórar Víðistaðakirkju
- Yngri og eldri kórar Öldutúnsskóla
- Kór Setbersskóla
Tónleikar yngri kóra hefjast kl. 12:30. Tónleikar eldir kóra hefjast kl. 16:30.
Stjórnendur eru: Brynhildur Auðbjargardóttir, Guðný Alma Haraldsdóttir, Helga Sigríður Kolbeins og María Gunnarsdóttir. Píanisti mótsins er Erla Rut Káradóttir.
Tónleikarnir eru fyrirtaks fjölskylduskemmtun, allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Aðgangur er ókeypis.
