Fjárhagsaðstoð í nýju sjálfsafgreiðsluferli

Verkefnasögur

Nýlega var sett í loftið umsókn um fjárhagsaðstoð hjá Hafnarfjarðarbæ sem hefur mikil áhrif á ferli umsækjanda og vinnu starfsfólks í átt að meiri sjálfvirkni og sjálfsafgreiðslu.

Nýlega var sett í loftið umsókn um fjárhagsaðstoð hjá Hafnarfjarðarbæ sem hefur mikil áhrif á ferli umsækjanda og vinnu starfsfólks í átt að meiri sjálfvirkni og sjálfsafgreiðslu. Þetta verkefni er fyrsta skrefið í sameiginlegri stafrænni vegferð sveitarfélaga í samvinnu við Stafrænt Ísland og nýtingu tæknilegra innviða sem byggðir hafa verið upp hjá Ísland.is. Verkefnið er liður í aðgerðaráætlun þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga og hlaut fjárstuðning að upphæð 100 m.kr. á fjárauka árið 2020 sem lið í Covid aðgerðum.

Samstarf sveitarfélaga um þróun stafrænna lausna

Lausnin byggir á umsóknarferli Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð sem sett var í loftið árið 2019 og hefur hlotið mikið lof og viðurkenningu. Fjárhagsaðstoð til fólks sem ekki getur séð sér og sínum farborða án aðstoðar er lögbundið verkefni og tóku sveitarfélögin ákvörðun um að vinna sameiginlega að þróun stafrænnar lausnar inn á miðlægan þjónustuvef Ísland.is.

„Ávinningur af þessu verkefni er mikill fyrir umsækjendur og starfsfólk. Ferlið verður styttra, minni pappírsvinnsla, kolefnissporið minnkar með minni keyrslu milli staða, fyrirspurnum mun fækka, lítil bið verður eftir gögnum og almennt hraðari afgreiðsla. Umsækjandinn sér strax hvar í ferlinu umsóknin er og ferlið verður allt aðgengilegra, skilvirkar og hagkvæmara,“ segir Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldu- og barnamálasviðs Hafnarfjarðarbæjar.

Verkefnið er leitt af stafrænu umbreytingarteymi Sambands íslenskra sveitarfélaga í samvinnu við félagsþjónustu sveitarfélaga og lögfræði- og velferðarsvið sambandsins. Hafnarfjarðarbær tók þátt í þróunarfasa og er fyrst til að taka lausnina í notkun. Hugbúnaðarfyrirtækin Kolibri og Andes voru samstarfsaðilar ásamt innanríkisráðuneyti.

Fulltrúar samstarfsaðila hittust í ráðhúsi Hafnarfjarðar í vikunni til að fagna innleiðingu nýrrar stafrænnar lausnar fjárhagsaðstoðar sem önnur sveitarfélög munu á næstu vikum og mánuðum innleiða hjá sér.

 

Sjálfvirk gagnaöflun frá Þjóðskrá og Skattinum einfaldar ferlið umtalsvert

Hafnarfjarðarbær er tilraunasveitarfélag í þessu verkefni en innleiðing hjá fjölmörgum öðrum sveitarfélögum er í undirbúningi. Markmiðið er að einfalda og bæta þjónustu við notendur hvar á landinu sem þeir eru, fækka skrefum og um leið tryggja öryggi og stöðugleika við umsýslu umsókna. Lausnin er hýst og viðhaldið á miðlægum stað um leið og tæknilegir innviðir Ísland.is eru nýttir. Sjálfvirk gagnaöflun frá Þjóðskrá og Skattinum einfaldar ferlið fyrir umsækjandann mikið og einnig felst í því mikið hagræði fyrir starfsfólk.

Hannað með þarfir notenda í huga

Mikil áhersla er á að ferlið sé hannað út frá þörfum notenda þjónustunnar. Umsækjandi þarf aðeins að skrá sig með rafrænum skilríkjum, svara nokkrum spurningum, veita heimild til að sækja gögn og fær í kjölfarið skýra sýn á stöðu umsóknar og næstu skref. Áframhaldandi samskipti fara í gegnum umsóknargátt á Ísland.is og er niðurstaða afgreiðslu birt þar. Breytt ferli var virkjað á vef Hafnarfjarðarbæjar um áramót og lofa fyrstu vikurnar góðu. Ráðgjafar hjá Hafnarfjarðarbæ sjá mikil tækifæri til að bæta enn frekar þjónustu og samskipti við sína skjólstæðinga. Tíminn sem sparast, sem áður fór í mikla handavinnu með skjöl og útskýringar á flóknu ferli, má nýta í að veita betri velferðarþjónustu og styðja við umsækjendur. Verkefnið þykir boða gott um næstu skref í sameiginlegri vegferð sveitarfélaga í stafrænum umbótum.

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Ábendingagátt