Hafnarfjarðarbær baðaður í bleikum ljóma Bleikur fatnaður, bleikar veitingar, bleikt skraut og bleikir fylgihlutir voru einkennandi á starfsstöðvum Hafnarfjarðarbæjar; í leikskólum bæjarins og stofnunum. Nemendur og starfsfólk grunnskóla tóku forskot á bleiku sæluna fyrr í vikunni í ljósi þess að vetrarfrí stendur nú yfir í grunnskólunum. Með þessu árlega og fallega framtaki vill starfsfólk sveitarfélagsins […]
Flokkur: Fréttir
Leikstjórinn Gunnar Björn heimsækir 8. bekkinga
Kvikmyndagerðamaðurinn og leikstjórinn Gunnar Björn Guðmundsson mun á næstu dögum heimsækja alla nemendur í 8. bekk í grunnskólum Hafnarfjarðar og fjalla um gerð kvikmynda, ræða við nemendur og fjalla um vinnuferlið í kvikmyndagerð. Í heimsókn sinni mun Gunnar segja frá starfi sínu og fræða börnin um það hvernig kvikmynd verður til, allt frá fyrsta handriti […]
Samstarf um mat á gæðum leikskólastarfs
Hafnarfjarðarbær, Mosfellsbær og Garðabær hafa tekið höndum saman um að vinna þróunarverkefni með Menntavísindasviði Háskóla Íslands um mat á innra starfi í leikskólum. Áhersla lögð á að styrkja innra mat leikskóla og auka þekkingu á sviði innra mats Hafnarfjarðarbær, Mosfellsbær og Garðabær hafa tekið höndum saman um að vinna þróunarverkefni með Menntavísindasviði Háskóla Íslands […]
Viltu losna við grenitré úr þínum garði?
Líkt og undanfarin ár býðst Hafnarfjarðarbær til að fjarlægja grenitré úr heimagörðum íbúa, þeim að kostnaðarlausu. Leit stendur yfir að grenitrjám sem lokið hafa sínu hlutverki hjá garðeigendum og hægt væri að koma fallega fyrir á opnum svæðum á aðventunni. Lumar þú á grenitré í þínum garði sem gæti orðið gleðigjafi á aðventunni? Grenitré geta […]
Bleikur október í Hafnarfirði – MUNDU og verum til
Hafnarfjarðarbær tekur virkan þátt í átaksverkefninu Bleika Slaufan í bleikum október m.a. með því að baða sig í bleikum blómum og bleiku skrauti á hjörtunum tveimur í hjarta Hafnarfjarðar; á Strandgötunni og í Hellisgerði. Þannig vill sveitarfélagið ýta undir og styðja við mikilvægt og árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins sem tileinkað er baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. […]
Þrettán verkefni fá menningarstyrk
Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar til verkefna og viðburða voru afhentir við hátíðlega athöfn í Bókasafni Hafnarfjarðar í gær og hlutu þrettán verkefni styrk að þessu sinni. Heildarupphæð styrkja í þessari úthlutun er 2,7 milljónir og þar með hefur samtals 11 milljónum verið úthlutað í formi menningarstyrkja á árinu 2021. Verkefni sem auðga og dýpka […]
Vetrarfrí í Hafnarfirði – hugmyndir að góðri skemmtun
Sund, bingó, ratleikur, bíó, listasmiðjur og fleira skemmtilegt! Vetrarfrí er í grunnskólum Hafnarfjarðar í vikulok; fimmtudaginn 14. október og föstudaginn 15. október. Af því tilefni er m.a. frítt í sund fyrir börn og fullorðna þessa tvo daga í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug og Sundhöll Hafnarfjarðar. Heilsubærinn Hafnarfjörður býður börnum og fjölskyldum þeirra að taka þátt skemmtilegu bingói í […]
Bóka- og bíóhátíð lýkur með bíóveislu og brellugerð
Lokadagur Bóka- og bíóhátíðar í Hafnarfirði er miðvikudagurinn 13. október Til að slá botninn í frábæra og vel lukkaða Bóka- og bíóhátíð í Hafnarfirði 2021 er blásið til öðruvísi og innihaldsríkrar bíóveislu í Bæjarbíói á síðasta degi hátíðarinnar. Í boði eru þrír viðburðir sem allir eru ókeypis og allir velkomnir meðan húsrými leyfir. Hin bráðskemmtilega […]
Hausthopp við Hraunvallaskóla
Hausthopp á nýjum belg á lóð Hraunvallaskóla Nýr ærslabelgur og sá fjórði í Hafnarfirði hefur nú risið á lóð Hraunvallaskóla og geta nemendur við skólann og kátir krakkar á Völlunum og vonandi víðar notið þess að hoppa á belgnum á meðan veður leyfir. Það voru kátir krakkar sem nutu sín og sýndu flotta takta […]
Fyrsti deilibíll kominn til Hafnarfjarðar
Deilibíllinn er staðsettur í miðbæ Hafnarfjarðar Fyrsti Zipcar deilibíllinn er kominn til Hafnarfjarðar og er þegar orðinn aðgengilegur áhugasömum íbúum og starfsfólki fyrirtækja í Hafnarfirði. Deilibíllinn stendur á merktu stæði á horni Fjarðargötu og Linnetsstígs í miðbænum og virkar þjónustan þannig að íbúar bóka bílinn, sækja hann og skila aftur á sama stað í sama […]