Íslandsmeistaramót í sundi verður haldið í Ásvallalaug í Hafnarfirði dagana 12. – 14. nóvember. Ásvallalaug verður þar af leiðandi lokuð almenningi alla helgina; föstudag, laugardag og sunnudag. Fyrirfram þakkir fyrir sýndan skilning!
Flokkur: Fréttir
Jákvæð afkoma og mikil uppbygging
Skuldaviðmið undir 100% í fyrsta sinn í áratugi Tillaga að fjárhagsáætlun 2022 verður lögð fyrir bæjarstjórn Hafnarfjarðar í dag miðvikudaginn 10. nóvember. Áætlaður rekstrarafgangur A- og B-hluta sveitarfélagsins nemur 842 milljón króna á árinu 2022. Gert er ráð fyrir að veltufé frá rekstri verði 2,5% af heildartekjum eða 886 milljónir króna. Áætlun gerir ráð fyrir […]
Aðgerðir hertar vegna mikillar fjölgunar smita
COVID-19: Innanlandsaðgerðir hertar vegna mikillar fjölgunar smita – mynd Skylt verður að bera grímu þegar ekki er unnt að virða 1 metra nálægðarreglu, fjöldatakmarkanir verða 500 manns, veitingastöðum með vínveitingaleyfi verður skylt að loka tveimur tímum fyrr en nú. Með notkun hraðprófa verður heimilt að halda viðburði fyrir allt að 1.500 manns. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið […]
Samningur um nýjar skíðalyftur í Bláfjöllum
Uppbygging skíðaaðstöðu á Skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins Samkvæmt samkomulagi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins er gert ráð fyrir um 5,2 milljarða kr. fjárfestingu í innviðum vegna skíðaiðkunar til ársins 2026. Markmið uppbyggingarinnar er að bæta aðstöðu og þjónustu fyrir alla hópa skíðaiðkenda. Gert er ráð fyrir því að settar verði upp nýjar stólalyftur, Gosi og […]
Brúin valin til þátttöku í alþjóðlegri keppni UNICEF
Nýverið var tilnefning um Brú Hafnarfjarðarbæjar send inn í alþjóðlega keppni Unicef sem ber heitið Child Friendly Cities and Local Governments Inspire Awards og tekur Brúin þar þátt í flokknum Child-friendly social services eða barnvæn félagsþjónusta. Verklag Brúarinnar hefur verið í þróun frá 2018 og er markmiðið að samþætta þjónustu við leik- og grunnskólabörn Hafnarfjarðar […]
Árið er 1951 – hátíðarhöld til heiðurs 70 ára Hafnfirðingum
Síðustu tvo dagana hafa staðið yfir hátíðarhöld í Hásölum í Hafnarfjarðarkirkju til heiðurs Hafnfirðingum sem fæddir eru árin 1950 og 1951. Tilefnið eru afmælisveislur fyrir þá Hafnfirðinga sem sjötugir urðu á árinu 2020 og sjötugir verða eða eru orðnir á árinu 2021. Hátíðarhöldin eru hefð sem skapast hefur síðustu árin og eru stórafmælis-veislurnar orðnar sjö […]
Árið er 1950 – afmælisveisla fyrir sjötuga Hafnfirðinga
Hefð hefur skapast fyrir því að bæjarstjóri Hafnarfjarðar bjóði öllum þeim Hafnfirðingum sem eru 70 ára á árinu til veislu í Hásölum. Ekki reyndist unnt að halda veislu á árinu 2020 vegna heimsfaraldurs og loksins í gær var hátíðin haldin í Hásölum. Rétt um 100 kátir Hafnfirðingar komu saman hlýddu á ljúfa tóna og fékk […]
Örstyrkir til menningar og lista á aðventunni
Viltu taka þátt í að auðga jólaandann á aðventunni? Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um örstyrki til menningarmála á aðventunni. Til þess að styðja við hafnfirskt listafólk og hafnfirska menningu verður hluta af fjármagni Jólaþorpsins í Hafnarfirði úthlutað til ýmissa verkefna sem fara fram á aðventunni 2021. Óskað er eftir hvers konar atriðum, upplifun og skemmtun […]
Syndum saman hringinn í kringum Ísland – landsátak
Landsátak í sundi dagana 1. – 28. nóvember 2021 Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi dagana 1. – 28. nóvember 2021. Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Sund er fyrir alla óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sund er tilvalin þjálfunaraðferð þar sem […]
Breyttur opnunartími í þjónustuveri
Hafnarfjarðarbær hefur síðustu mánuði og ár markvisst tekið skref í átt að snjallari þjónustu gagngert til að bæta gæði og skilvirkni. Nýjum snjöllum lausnum hefur verið vel tekið af íbúum og öðrum þjónustuþegum og nýjar leiðir til samskipta og miðlunar upplýsinga að gefa góða raun. Stafrænar breytingar og þróun afgreiðslutíma almennt í samfélaginu hefur m.a. […]