Hraunbúar sjá um rekstur skátamiðstöðvar og tjaldsvæði Hafnarfjarðarbær og Skátafélagið Hraunbúar skrifuðu í vikunni undir samning um umsjón og rekstur á skátamiðstöðinni Hraunbyrgi og tjaldsvæði á Víðistaðatúni auk skátaskála við Kleifarvatn. Hraunbúar sjá um rekstur á Hraunbyrgi að Hjallabraut 51 og tjaldsvæði á Víðistaðatúni þar með talið skátaheimili, áhaldahúsi, útisvæði, tjaldsvæði, þjónustuhúsi auk grillaðstöðu á […]
Flokkur: Fréttir
Þörf fyrir áfangastaðastofu þykir augljós
Þörfin fyrir áfangastaðastofu á höfuðborgarsvæðinu er augljós Ferðamálaþing Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) fór fram miðvikudaginn 27. apríl á Hilton Nordica. Á þinginu var fjallað um aðdragandann að stofnun áfangastaðastofu fyrir höfuðborgarsvæðið og tóku aðilar frá ferðaþjónustufyrirtækjum, sveitarfélögum og hinu opinbera þátt. Höfuðborgarsvæðið þarf að vera samkeppnishæft Gunnar Einarsson, formaður stjórnar SSH, setti þingið og […]
Viltu vera með söluhús eða atriði á 17. júní?
Viltu vera með söluhús á 17. júní? Hafnarfjarðarbær og þjóðhátíðarnefnd óska eftir áhugasömum söluaðilum til þess að leigja söluhús á 17. júní. Sérstaklega er leitast eftir aðilum sem hyggjast selja mat og drykk. Söluleyfið gildir föstudaginn 17. júní þar sem hátíðarhöldin fara fram í Hafnarfirði. Með söluleyfi fylgir sölukofi og er dregið um staðsetningu söluaðila. […]
Sveitarstjórnarkosningar 2022
Sveitarstjórnarkosningar fara fram 14. maí 2022 Kjörfundur í Hafnarfirði vegna sveitarstjórnarkosninganna 14. maí 2022 stendur yfir frá kl. 9 – 22. Kjörstaðir í Hafnarfirði eru tveir, Lækjarskóli að Sólvangsvegi 4 og Ásvellir íþróttamiðstöð. Kjósandi skal gera kjörstjórn grein fyrir sér á kjörstað með því að framvísa persónuskilríkjum á kjörstað. Kjörstjórn Yfirkjörstjórn í Hafnarfirði skipa: Þórdís Bjarnadóttir, […]
HönnunarMars í Hafnarfirði 2022
Sérstök athygli vakin á gróskumikilli hönnun í Hafnarfirði Lögð verður sérstök áhersla á hönnun í söfnum og menningarhúsum Hafnarfjarðar næstu dagana. Hafnarborg, Bókasafn Hafnarfjarðar og Bæjarbíó eru í hópi þeirra rúmlega 100 sýninga, 400 þátttakenda og 250 viðburða sem taka þátt í Hönnunarmars 2022, stærstu hönnunarhátíð landsins. Með þátttökunni vill Hafnarfjarðarbær vekja sérstaka athygli á […]
Vinnuskóli Hafnarfjarðar – opið fyrir umsóknir 14 – 17 ára
Sumarið 2022 fá 14 – 17 ára unglingar (fæddir árin 2005 – 2008) vinnu við Vinnuskóla Hafnarfjarðar. Vinnuskólinn sinnir fyrst og fremst umhverfismálum og á þannig stóran þátt í því að hreinsa bæinn og hirða gróður, götur og göngustíga yfir sumartímann. Starfsfólk Vinnuskólans sinnir því mikilvægu hlutverki í því að skapa vænta ásýnd bæjarins, að […]
Hjartasteinn í minningu Guðrúnar Helgadóttur
Fjölskylda Guðrúnar afhjúpar minnisvarða í hjarta Hafnarfjarðar Hjartasteinn í minningu Guðrúnar Helgadóttur var í dag lagður í hjarta Hafnarfjarðar fyrir framan Bæjarbíó. Hugmynd að fallegum virðingarvotti og minnisvarða kviknaði fyrst í samtali við höfundinn sjálfan í kjölfar þess að hún var heiðruð í Hafnarfirði fyrir ritverk hennar og framlag til íslenskrar menningar í tengslum við […]
Hraunvallaskóli kominn í úrslit í Skólahreysti
Hraunvallaskóli tryggði sér farseðil í úrslit Skólahreysti í gær eftir harða keppni Í Skólahreysti keppa nemendur í grunnskólum landsins sín á milli í hinum ýmsu greinum sem reyna á kraft, styrk og þol keppenda. Nemendur í grunnskólum Hafnarfjarðar hafa tekið virkan þáttí Skólahreysti og það með góðum árangri. Eftir fimm riðla af Skólahreysti vorið 2022 […]
Hreinsunardagar 2022– gámar við grunnskóla
Hreinsunardagar 2022 – gámar fyrir garðúrgang við grunnskóla Dagana 25. maí – 29. maí 2022 standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni HREINSUM HAFNARFJÖRÐ en þá geta íbúar í Hafnarfirði losað sig við garðúrgang í gám við alla grunnskóla hverfanna. Gámarnir verða við skólana frá kl. 17 miðvikudaginn 25. maí til loka dags sunnudaginn 29. […]
Viðburða- og menningarstyrkir í kjölfar Covid
Umsóknarfrestur framlengdur til og með 6. maí 2022 Bæjarráð auglýsir sérstaka viðburða- og menningarstyrki í kjölfar Covid-19 lausa til umsóknar. Umsóknarfrestur er til og með 6. maí og verða styrkirnir teknir til úthlutunar í bæjarráði. Umsækjendur verða að tengjast Hafnarfirði með einhverjum hætti. Til dæmis með fastri búsetu einstaklinga, með því að viðburðurinn eða verkefnið […]