Vinningstillaga Sigrúnar Ölbu Sigurðardóttur Listráð Hafnarborgar hefur valið tillöguna flæðir að – flæðir frá sem haustsýningu ársins 2022 úr hópi þeirra tillagna sem bárust undir lok síðasta árs en vinningstillagan var send inn af Sigrúnu Ölbu Sigurðardóttur. Í sýningarhugmyndinni er sjónum beint að strandlengjunni, sem er jafnt stórbrotin og uppfull af smáum lífverum, viðkvæmum gróðri […]
Flokkur: Fréttir
Rúmlega 3000 hafa skellt sér á skauta í hjarta Hafnarfjarðar
Hjartasvellið verður opið a.m.k. út janúar Á aðventunni varð gamall draumur margra um skautasvell í heilsubænum Hafnarfirði að veruleika þegar Hjartasvellið var opnað í samstarfi við Bæjarbíó. Hjartasvellið hefur fengið mjög góðar móttökur og hafa rúmlega 3.000 einstaklingar á öllum aldri skellt sér á skauta frá því opnað var um miðjan desember. Svellið er frábær […]
Kristín Sigrún er nýr mannauðsstjóri
Kristín Sigrún Guðmundsdóttir hefur verið ráðin nýr mannauðsstjóri Hafnarfjarðarbæjar. Kristín hefur fjölbreytta starfsreynslu á sviði mannauðsmála hjá hinu opinbera, í einkageiranum og sem ráðgjafi á alþjóðlegum vettvangi. Kristín Sigrún er með B.Ed. gráðu í uppeldis- og menntunarfræði og MA gráðu í mannfræði frá Danmörku auk diplóma í stefnumiðaðri mannauðsstjórnun. Síðasta ár hefur hún starfað sem […]
Bólusetning barna í Laugardalshöll
Á bólusetningardegi lýkur skóladegi kl. 11 Dagana 10. – 14. janúar munu eiga sér stað í Laugardalshöll bólusetning nemenda í 1. – 6. bekk. Mismunandi er milli skóla í Hafnarfirði hvaða dag og á hvaða tíma nemendur mæta í höllina og fá foreldrar og forsjáraðilar póst þess efnis frá skóla sinna barna en einnig má […]
Af öllu hjarta þakkar Jólabærinn fyrir sig!
Nú á Þrettándanum – þrettánda og síðasta degi jóla – vill starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar nota tækifærið og þakka innilega fyrir hlýja og góða samveru á aðventunni og yfir jólahátíðina. Hafnarfjörður hefur sjaldan verið eins hátíðlegur og fallegur og það fyrir samstillt átak allra; íbúa, fyrirtækja og starfsfólks. Sérstök athygli er vakin á því að vegna samkomutakmarkanna […]
Einstök samheldni og gestrisni íbúa
Fyrrum aðal verslunargata bæjarins Austurgata var á árum áður aðal verslunargata Hafnarfjarðar. Gatan er dæmigerð fyrir Hafnarfjörð þar sem byggðin, hraunið og fólkið mynda þétta heild. Við götuna standa 15 hús sem eru eldri en gatan sjálf og lögð hefur verið áhersla á að viðhalda götumynd frá upphafi 20. aldar. Samheldni íbúa við Austurgötu […]
Metnaðarfullur handverksbakari
Gulli Arnar bakarameistari hefur rekið samnefnt handverksbakarí við Flatahraun 31 í tæp tvö ár. Gulli er afar kraftmikill og metnaðarfullur ungur maður sem kom með ferskan blæ inn í flóru bakaría í Hafnarfirði, þar á meðal margar nýjungar sem ekki höfðu verið fáanlegar áður í bænum. Hjá handverksbakaríinu er passað vel upp á að […]
Styrkir til menningarstarfsemi
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna, viðburða og samstarfssamninga á sviði menningar og lista í Hafnarfirði. Umsóknum skal skila inn með rafrænum hætti. Umsóknarfrestur er til og með 8. febrúar 2022. Tvisvar á ári auglýsir menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar eftir umsóknum um styrki til menningarstarfsemi og eflingar á hafnfirsku menningarlífi. […]
Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2022
Hafnarfjarðarbær mun á síðasta vetrardag, miðvikudaginn 20. apríl, útnefna bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2022. Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum ábendingum sem menningar- og ferðamálanefnd mun hafa til hliðsjónar við val á bæjarlistamanni. Friðrik Dór Jónsson var bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2021. Einungis listamenn með fasta búsetu í Hafnarfirði koma til greina við úthlutun og er miðað […]
Jólatré ekki sótt heim eftir jólahátíðina
Tilkynning vegna jólatrjáa Af gefnu tilefni vill Hafnarfjarðarbær vekja athygli á því að bærinn hirðir ekki jólatré frá íbúum eftir jólahátíðina. Ákvörðun þess efnis var tekin þann 21. september 2016 og hafa jólatré ekki verið sótt heim síðan þá. Bent er á að íþróttafélög og félagasamtök eru í dag farin að bjóða upp á þá […]