Flokkur: Fréttir

COVID-19: Slakað á reglum um sóttkví

Einstaklingum sem eru útsettir fyrir COVID-19 smiti utan heimilis eða dvalarstaðar síns verður ekki lengur skylt að fara í sóttkví en þurfa þess í stað að viðhafa smitgát. Sóttkví verður áfram beitt gagnvart þeim sem hafa verið útsettir fyrir smiti innan heimilis eða dvalarstaðar en þríbólusettir sem útsettir eru á heimili geta verið í smitgát […]

Fasteignagjöld 2022 – álagningarseðlar aðgengilegir

Álagningarseðlar fasteignagjalda 2022 eru nú aðgengilegir á Mínum síðum og á island.is. Á seðlunum koma fram fjárhæðir fasteignaskatts, lóðarleigu, vatns-, fráveitu- og sorphirðugjalds. Einnig kemur fram fasteignamat og upplýsingar um eigendur og greiðendur gjaldanna. Tíu gjalddagar yfir árið – eindagi 30 dögum eftir gjalddaga Gjalddagar fasteignagjalda í Hafnarfirði árið 2022 eru tíu. Fyrsti gjalddaginn er […]

Niðurfelling gjalda vegna sóttkvíar/einangrunar barna

Niðurfelling gjalda vegna sóttkvíar/einangrunar barna í leikskólum og á frístundaheimilum Síðustu daga og vikur hefur Covid haft mikil áhrif á skólasamfélagið í Hafnarfirði líkt og í öðrum sveitarfélögum. Á tímum sem þessum eiga foreldrar og forsjáraðilar rétt á niðurfellingu gjalda vegna sóttkvíar og einangrunar barna sinna. Hafnarfjarðarbær og starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar vill nota tækifærið og þakka […]

Hvatningarverðlaun MsH – tilnefningar óskast

Sjötta árið í röð veitir Markaðsstofa Hafnarfjarðar hvatningarverðlaun til fyrirtækis sem hefur lyft upp bæjaranda Hafnarfjarðar með starfsemi sinni og athöfnum. Jafnframt eru veittar viðurkenningar til fyrirtækja, félaga eða einstaklinga sem hafa með starfsemi sinni eflt atvinnulíf og bæjaranda í bænum. Verðlaunin og viðurkenningarnar eru þakklætisvottur markaðsstofunnar fyrir óeigingjarnt starf við að gera Hafnarfjörð að […]

Skráning í Lífshlaupið er hafin

Lífshlaupið 2022 – landskeppni í hreyfingu – hefst þann 2. febrúar. Skráning hófst miðvikudaginn 19. janúar. Ætlar þú ekki örugglega að vera með í ár?  Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum Embættis landlæknis um hreyfingu hvort […]

Fræðandi, hvetjandi og styðjandi samfélag

Ásdís Auðunsdóttir, Inga Fríða Tryggvadóttir og Unnur Elfa Guðmundsdóttir eiga það sameiginlegt að vera allar metnaðarfullir stjórnendur og faglegir leiðtogar hjá Hafnarfjarðarbæ. Áhugi, reynsla, sýn og persónuleiki marka stjórnunarstíl þeirra og áherslur, í starfi þar sem mannauðurinn er mikilvægasta auðlindin.  Viðtal við Ásdísi, Ingu Fríðu og Unni Elfu birtist í Fréttablaðinu 20. janúar 2022 „Til […]

Samningur um knatthús á Ásvöllum og eftirgjöf lóðar

Framundan er spennandi uppbygging í grónu hverfi við Íþróttamiðstöð Hauka á Ásvöllum Hafnarfjarðarbær og Knattspyrnufélagið Haukar undirrituðu á dögunum framkvæmdasamning um byggingu knatthúss á Ásvöllum. Samhliða afhenti félagið óbyggða lóð til Hafnarfjarðarbæjar undir uppbyggingu á 100-110 íbúðum. Nánar tiltekið lóðina Ásvelli 3 sem varð til úr lóðinni Ásvellir 1 og er þegar skilgreind í samþykktu […]

Sýnataka í smitgát afnumin og útivera í einangrun heimiluð

COVID-19: Krafa um sýnatöku í tengslum við smitgát afnumin og útivera í einangrun heimiluð Einstaklingum sem sæta smitgát í kjölfar smitrakningar verður ekki lengur skylt að fara í hraðpróf við upphaf og lok smitgátar frá og með morgundeginum en þurfa að fara gætilega í 7 daga og í PCR próf ef einkenni koma fram. Heilbrigðisráðherra […]

Styrkir til viðhalds og endurbóta eldri húsa

Húsverndarsjóður – styrkir til viðhalds og endurbóta eldri húsa Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsverndarsjóði Hafnarfjarðar. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi eldri húsa í Hafnarfirði og veitir styrki til viðhalds og endurbóta. Sjóðnum er einnig heimilt að veita styrki til viðhalds og verndunar annarra mannvirkja í bænum sem hafa […]

Slöbbum saman 15. janúar – 15. febrúar

Slabbaðu með hundinum. Slabbaðu með fjöllunni. Slabbaðu með mömmu og pabba. Slabbaðu með vinum. Manaðu vinahópinn eða vinnufélagana í slabbaða skrefakeppni! Slöbbum saman er verkefni Landlæknisembættis, ÍSÍ, UMFÍ, Heilsueflandi samfélags og Sýn fara nú af stað með og miðar að því að fá fólk til að hreyfa sig. Heilsubærinn Hafnarfjörður tekur að sjálfsögðu virkan þátt […]