Flokkur: Fréttir

Halló Hafnarfjörður – gjöf til nýfæddra Hafnfirðinga

35 Hafnfirðingar hafa komið í heiminn frá áramótum Frá og með 1. janúar 2022 munu nýfæddir Hafnfirðingar fá táknræna og fallega gjöf frá bænum sínum eða svokallaða „krúttkörfu“. Gjöfin er liður í því að efla Hafnarfjörð enn frekar sem fjölskylduvænt samfélag og bjóða nýfædda Hafnfirðinga velkomna í heiminn með formlegum og eftirminnilegum hætti. 35 nýir […]

Gönguskíðabraut á Óla Run túni og Hvaleyrinni

Komdu á gönguskíði heima í Hafnarfirði  Hafnfirðingar eru að upplifa alvöru vetrarríki þessa dagana. Fallegur snjór liggur yfir öllu sem opnar á möguleika í ástundun vetraríþrótta eins og gönguskíða. Skautar og snjóþotur hafa verið dregnar fram og nú er snjólag orðið það mikið að hægt er með góðu móti að draga líka fram gönguskíðin.  Til […]

COVID19 – enn meiri tilslakanir

COVID-19: Afnám sóttkvíar, fjöldatakmörk í 200 manns, 1.000 manna viðburðir heimilaðir o.fl. Hátt í 10.000 manns losna undan sóttkví í dag þegar reglur um sóttkví falla brott með reglugerð. Á miðnætti tekur svo gildi reglugerð um samkomutakmarkanir sem felur í sér tilslakanir, líkt og nánar er tíundað hér að neðan. Sjá tilkynningu á vef Stjórnarráðsins  […]

Bilanir og heimsfaraldur höfðu áhrif á snjómokstur bæjarins

Sérstakar þakkir til íbúa fyrir þolinmæði, sýndan skilning og þátttöku Fyrsti alvöru snjódagar vetrarins komu núna í þessari viku og hefur starfsfólk þjónustumiðstöðvar og verktakar á vegum bæjarins staðið snjóvaktina frá miðri nótt fram á kvöld síðustu daga. Þrátt fyrir að mokstur hafi hafist um miðja nótt m.a. aðfaranótt þriðjudags þá höfðu bilanir á tækjum […]

Íbúar móta Hafnarfjörð framtíðarinnar

Samráðsgátt íbúa um framtíðarsýn fyrir Hafnarfjörð til 2033 Íbúum Hafnarfjarðar stendur nú til boða að koma með hugmyndir og tillögur um hvernig þeir vilja sjá bæinn sinn árið 2035. Samráðsgátt, sem opnuð hefur verið á vefsvæðinu Betri Hafnarfjörður, er hluti af mótun heildstæðrar stefnu fyrir bæjarfélagið til næstu 10-15 ára. Verkefnið er leitt af stýrihópi […]

Vika6 – árlegt kynheilbrigðis átak

Þema vikunnar í ár er kynlíf og menning  Vika6 byggir á danskri hugmynd og er tileinkuð því að vekja athygli á mikilvægi kynheilbrigðis og kynfræðslu fyrir börn og ungmenni. Reykjavíkurborg hefur keyrt vikuna þrjú ár í röð og í ár stökkva fleiri sveitarfélög á vagninn með það fyrir augum að fá sem flesta til að […]

Leikskólar og frístundastarf opna kl. 13 í dag

Samræmd skilaboð frá almannavörnum fyrir höfuðborgarsvæðið  Leikskólar opnar kl. 13. Starf frístundaheimila, íþróttastarf, tónlistarskóla og félagsmiðstöðvar hefst á sínum hefðbundnu tímum. Skólahald var fellt niður í dag vegna óveðursins sem gekk yfir landið í nótt. Það snjóaði ekki eins mikið á höfuðborgarsvæðinu í nótt eins og búist var við, þar sem hiti var nokkuð yfir […]

Leikskólar landsins eiga daginn í dag!

Dagur leikskólans er 6. febrúar! Til hamingju! Á Degi leikskólans er bæði mikilvægt og verðskuldað að varpa sérstöku ljósi á það mikla og góða starfi sem fram fer innan leikskóla Hafnarfjarðar. Lágstemmd, fjölbreytt, aðlöguð og hressandi hátíðarhöld hafa staðið yfir í leikskólunum síðustu vikuna og mun komandi vika líka markast, að einhverju leyti, af hátíðarhöldum […]

Rauð veðurviðvörun 7. febrúar – höldum okkur heima

Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir hættustigi almannavarna fyrir allt landið vegna aftakaveðurs á morgun, mánudaginn 7. febrúar 2022. Rauð veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir höfuðborgarsvæðið á morgun mánudag sem þýðir að fólk á ekki að vera á ferðinni nema brýna nauðsyn beri til. Þó svo veður verði skaplegt á morgun og veðurviðvaranir ekki til staðar, […]

UPPFÆRT: Skert þjónusta vegna ofsaveðurs

UPPFÆRT kl. 09.30 mánudaginn 7. febrúar  Það snjóaði ekki eins mikið á höfuðborgarsvæðinu í nótt eins og búist var við þar sem hiti var nokkuð yfir frostmarki. Þess vegna eru flestar stofnæðar og tengibrautir færar og einnig fjölmargar íbúðargötur. Unnið verður fram eftir morgni að ryðja íbúðargötur sem eru ekki færar og á það helst […]