Þú? Þið? Nágranninn? Vinafólkið? Foreldrarnir? Gömu skólafélagarnir? Bæjarbúar hafa heldur betur tekið hvatningunni um að skreyta hús sín og lýsa upp skammdegið vel og nú styttist óðum til jóla. Á Þorláksmessu verða, líkt og síðustu ár í jólabænum Hafnarfirði, veitt verðlaun fyrir best skreyttu íbúðarhúsin og best skreyttu götuna í Hafnarfirði. Setjum upp risastóru jólagleraugun […]
Flokkur: Fréttir
Árlegt jólarölt FKA tekið í Hafnarfirði
Hið árlega jólarölt Félags kvenna í atvinnulífinu – FKA 2021 var tekið í jólabænum Hafnarfirði í lok síðustu viku. Jólaröltið hófst með jólaglöggi á bókakaffihúsinu á Norðurbakkanum og í framhaldinu nýttu FKA konur tímann vel og önduðu að sér jólaandanum í jólabænum sem skartar sínu fínasta þessa dagana. Félagskonur vörðu tíma saman, kíktu á félagskonur í […]
Bókasafnið hefur þjónað mörgum kynslóðum
Sigrún Guðnadóttir, forstöðumaður Bókasafns Hafnarfjarðar, hefur í nógu að snúast þessa dagana enda mikill gestagangur í safninu sem mun halda upp á eitt hundrað ára afmæli á næsta ári. Sigrún segir að bókasafnið eigi afmæli næsta haust en nokkrum stórum og sérstökum viðburðum verður dreift yfir árið af því tilefni. Hlýja, ró, fræðsla og gróska […]
Hjartasvellið opnar um miðjan desember
Hjartasvellið verður opnað formlega 11. desember ef allt gengur að óskum Í desember og fram í janúar mun Hafnarfjarðarbær í samstarfi við Bæjarbíó setja upp 200 fermetra skautasvell sem hefur fengið nafnið Hjartasvellið og verður staðsett á bílastæðinu beint fyrir aftan Bæjarbíó. Hjartasvellið verður frábær afþreying, upplifun og hreyfing fyrir Hafnfirðinga og gesti jólabæjarins Hafnarfjarðar […]
Komdu að starfa með okkur. Fjölbreytt störf í boði!
Ertu í atvinnuleit og langar að starfa í gefandi og skemmtilegu starfsumhverfi? Komdu að starfa með okkur! Yfirlit yfir öll laus störf hjá sveitarfélaginu Á ráðningarvef Hafnarfjarðarbæjar er að finna yfirlit yfir öll þau fjölbreyttu störf sem í boði eru hjá sveitarfélaginu. Um er að ræða framtíðarstörf, fullt starf eða hlutastörf sem tilvalin eru með […]
Heimur ljóss og hús tækifæranna í Hellisgerði
Hellisgerði í Hafnarfirði stimplaði sig skemmtilega inn á aðventunni 2020 sem heimur ljóss og upplifunar. Þessi fallegi skrúðgarður Hafnfirðinga er, líkt og í fyrra, orðinn að heillandi og aðlaðandi ævintýralandi í aðdraganda jólanna og mun með ljósum sínum gleðja gesti og gangandi á aðventunni. Stóra rauða jólahjartað við innganginn frá Reykjavíkurvegi markar andann og tekur […]
Jóladagatal bókasafnsins – bærinn og bæjarbragurinn
Í ár býður Bókasafn Hafnarfjarðar upp á splunkunýtt, frumsamið jóladagatal. Þættir dagatalsins eru 18 talsins og miðast þeir við virka daga svo að hægt sé að nýta þá í kennslu. Í þáttunum þarf Lestrar-lemúrinn, lukkudýr barna- og ungmennadeildar, að finna bókasafnið á ný eftir að hafa verið stolið af frekum máv. Snert er á helstu kennileitum […]
Jóladagatal Hafnarborgar – Hvar er Völundur?
Hafnarborg telur niður dagana fram að jólum með því að sýna jóladagatalið Hvar er Völundur? milli kl. 16 og 17 alla opnunardaga safnsins í desember fram að jólum. Hvar er Völundur? er jóladagatal sem framleitt var af RÚV árið 1996 og er löngu orðið klassískt. Höfundur þess er Þorvaldur Þorsteinsson listamaður en yfirlitssýning á verkum […]
Einstök jólastemning allan desember í athvarfinu Læk
Jólaföndur, jólabakstur, bíókvöld, jólaglögg, konfektgerð, fríðarstundir og Litlu jól Starfsfólk Lækjar og gestir eru að detta í jólagírinn og ætla í desember að skapa saman einstaka jólastemningu í nýju og glæsilegu húsnæði athvarfsins að Staðarbergi 6. Boðið verður upp á jólaföndur og jólabakstur í hverri viku ásamt einstökum viðburðum á borð við bíókvöld, jólaglögg og […]
Alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Fimmtudaginn 25. nóvember var alþjóðlegur baráttudagur Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi. Af því tilefni var hús Hafrannsóknarstofnunar í Hafnarfirði, Harpa, Stjórnarráð Íslands, Gróttuviti auk fleiri bygginga lýstar upp í appelsínugulum lit, sem er táknrænn fyrir von og bjarta framtíð kvenna og stúlkna án ofbeldis. Átakið, sem lýkur 10. desember á alþjóðadegi mannréttinda, er drifið áfram […]