Flokkur: Fréttir

Styrkir til viðhalds og endurbóta eldri húsa

Húsverndarsjóður – styrkir til viðhalds og endurbóta eldri húsa Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsverndarsjóði Hafnarfjarðar. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi eldri húsa í Hafnarfirði og veitir styrki til viðhalds og endurbóta. Sjóðnum er einnig heimilt að veita styrki til viðhalds og verndunar annarra mannvirkja í bænum sem hafa […]

20 ungmenni í stjórn ungmennahúsanna

20 ungmenni úr ólíkum áttum voru kosin til stjórnar  Aðalfundur ungmennahússins Hamarsins var haldinn 16. desember síðastliðinn. Meðal efnis á fundi var kosning í stjórn ungmennahússins fyrir árið 2022 en kosning fer fram árlega. 20 ungmenni úr ólíkum áttum með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu voru kosin til stjórnar. 11 koma nýir í stjórn og 9 […]

Almennar samkomutakmarkanir hertar á miðnætti

COVID-19: Almennar samkomutakmarkanir hertar á miðnætti Almennar samkomutakmarkanir verða 10 manns, heimild til aukins fjölda fólks á viðburðum með hraðprófum fellur brott, hámarksfjöldi í verslunum verður 200 manns og skemmtistöðum, krám og spilakössum verður lokað. Þetta er megininntak hertra sóttvarnaráðstafana sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið og byggjast á tillögum sóttvarnalæknis. Gildandi takmarkanir á skólastarfi verða óbreyttar. […]

Neyðarstig Almannavarna vegna COVID-19

Ríkislögreglustjóri, í samráði við sóttvarnalækni, hefur lýst yfir neyðarstigi Almannavarna vegna COVID-19 heimsfaraldursins. Frá því heimsfaraldurinn hófst hefur neyðarstigi Almannavarna vegna COVID-19 verið lýst yfir þrisvar, 6. mars 2020, 4. október 2020 og 24. mars 2021.  Sjá tilkynningu á vef Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra  Þrátt fyrir að staðan sé eins og hún er í faraldrinum þá eru […]

Innritun nemenda í grunnskóla haustið 2022

Opnað hefur verið fyrir innritun barna sem eru að fara í 1. bekk grunnskóla í Hafnarfirði haustið 2022 og er fyrsta viðmið um umsóknarfrest 1. febrúar. Grunnskólar Hafnarfjarðarbæjar eru opnir öllum börnum óháð búsetu í bænum og eru foreldrar hvattir til að kynna sér starfsemi skólanna. Hafnarfjörður er eitt skólaumdæmi skipt upp í skólahverfi og […]

Gildandi takmarkanir framlengdar til 2. febrúar

COVID-19: Gildandi takmarkanir innanlands framlengdar til 2. febrúar Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja óbreyttar gildandi takmarkanir á samkomum innanlands til og með 2. febrúar næstkomandi. Ákvörðun ráðherra byggist á tillögum sóttvarnalæknis sem telur nauðsynlegt að takmarka áfram sem mest útbreiðslu Covid-19 til að verja heilbrigðiskerfið. Samhliða nýrri reglugerð um samkomutakmarkanir hefur ráðherra til hagræðis sett […]

Tæknifræðisetur HÍ stækkað vegna aukinna vinsælda

Til stendur að stækka Tæknifræðisetur Háskóla Íslands í Menntasetrinu við Lækinn í Hafnarfirði í kjölfar þess að nemendum í tæknifræðinámi hefur fjölgað umtalsvert á undanförnum misserum. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, undirrituðu samkomulag þessa efnis í Tæknifræðisetrinu á dögunum. Eftirspurn eftir tæknimenntuðu fólki vaxandi í íslensku samfélagi  Rúm […]

Vegna netárásar á Strætó

Tilkynning til notenda akstursþjónustu um öryggisbrest í kerfum Strætó Líkt og komið hefur fram í fjölmiðlum varð Strætó fyrir fjandsamlegri netárás frá erlendum árásaraðilum í lok desember sem náðu að brjóta sér leið inn í kerfi Strætó og afrita gögn og upplýsingar sem þar eru að finna. Komið hefur í ljós að árásaraðilarnir komust yfir […]

Gul veðurviðvaranir 11. – 13. janúar

Gul veðurviðvörun er í gildi í dag þriðjudaginn 11. janúar frá kl. 22:00 – 02:00 og önnur frá kl. 11:00 miðvikudaginn 12. janúar til kl. 12:00 fimmtudaginn 13. janúar.  Nánar á Veðurstofu Íslands  Forsjáraðilar þurfa að meta sjálfir hvort fylgja þurfi börnum í eða úr skóla eða frístundastarfi miðvikudag og fimmtudag. Rétt er að hafa […]

Skapandi sumarstörf 2021 halda áfram að gefa

Stuttmyndin Kílómetrar frumsýnd á stuttmyndahátíð í New York Stuttmyndin „Kílómetrar“ sem er skrifuð, leikstýrð og leikin af Óla Gunnari Gunnarssyni og Vilbergi Andra komst inn á stuttmyndahátíðina „New York Indie Short Awards“ og var frumsýnd þar á dögunum. Óli Gunnar og Vilberg Andri eru hluti af hópi þeirra ungmenna sem unnu við skapandi sumarstörf hjá […]