Heimaræktun er gefandi verkefni fyrir alla fjölskylduna Heilsubærinn Hafnarfjörður færir öllum heimilum í Hafnarfirði nú sumargjöf til marks um grósku, vöxt og vellíðan. Gjöfin á að fá íbúa í Hafnarfirði til að staldra við, draga andann létt, lifa í núinu og huga að mikilvægi eigin ræktunar í öllum skilningi. Um er að ræða fræpakka með […]
Flokkur: Fréttir
Örstyrkir til verkefna á Björtum dögum í allt sumar
Opið fyrir umsóknir um örstyrki Bjartir dagar er menningarhátíð sem endurspeglar allt það fjölbreytta menningarstarf sem á sér stað í Hafnarfirði. Hátíðin hófst með því að syngja inn sumarið síðasta vetrardag en ákveðið hefur verið að hátíðin standi yfir í allt sumar og verði hattur fjölbreyttra hátíðarhalda eftir því sem sóttvarnarreglum og fjöldatakmörkunum sleppir. Opnað […]
Ársreikningur 2020 samþykktur í bæjarstjórn
Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar samþykktur í bæjarstjórn Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2020 var samþykktur í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í vikunni. Helstu niðurstöður eru þær að rekstrarafkoma fyrir A og B hluta Hafnarfjarðar var jákvæð um 2,3 milljarða króna. Fyrir A hluta var afkoman jákvæð um 1,6 milljarða króna. Góður árangur náðist við að verja grunnrekstur bæjarsjóðs á síðasta […]
Sumarstörf fyrir námsmenn – opið fyrir umsóknir
Fjölbreytt störf verða í boði hjá Hafnarfjarðarbæ sumarið 2021 fyrir námsfólk sem hefur verið í námi á vorönn 2021 eða er skráð í nám á haustönn 2021. Um er að ræða sumarstörf sem tengjast aðgerðum stjórnvalda og miða að því að stuðla að virkni og framtíðarsókn fyrir íslenskt atvinnulíf. Hafnarfjarðarbær mun taka virkan þátt í […]
Íbúðarhúsalóðir í Hafnarfirði rjúka út – Hamranes uppselt
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar staðfesti á fundi sínum í gær úthlutun á síðustu lóðunum í Hamranesi, 25 hektara nýbyggingarsvæði sem tekið er að rísa sunnan Skarðshlíðarhverfis og Vallahverfis í Hafnarfirði. Framkvæmdir við lóðir í Hamranesi hófust í upphafi árs og mun þar rísa hátt í 1800 íbúða hverfi á næstu mánuðum og árum. Áætlaður íbúafjöldi er rúmlega […]
Skráning í sumarfrístund er hafin
Í Hafnarfirði er boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn og ungmenni yfir sumartímann. Á vefnum www.tomstund.is er hægt að skoða námskeið og sumarfrístund á vegum Hafnarfjarðarbæjar. Opið er fyrir skráningar frá og með 28. apríl 2021. Búið er að opna fyrir eftirfarandi skráningu: Sumarfrístund fyrir 7-9 ára við alla grunnskóla SumarKletturinn fyrir börn í […]
Samkomulag um framkvæmdir á 3. hæð St. Jó
Styrktar- og líknarsjóður Oddfellowa og Hafnarfjarðarbær undirrita samkomulag um framkvæmdir við dagdeildir Alzheimer- og Parkinsonsamtakanna í St. Jó Síðasta vetrardag gengu Styrktar- og líknarsjóður Oddfellowa (StLO) og Hafnarfjarðarbær frá samkomulagi um framkvæmdir við dagdeildir Alzheimer- og Parkinsonsamtakanna á 3. hæð á Lífsgæðasetri St. Jó við Suðurgötu 41 í Hafnarfirði. Unnið hefur verið að útfærslu samkomulagsins […]
Covid19: Tillaga stjórnvalda um afléttingu í áföngum
COVID-19: Tillaga stjórnvalda um afléttingu innanlandstakmarkana í áföngum Heilbrigðisráðuneytið kynnir áætlun um afléttingu innanlandstakmarkana vegna COVID-19 í áföngum með hliðsjón af framgangi bólusetningar. Áætlað er að aflétta megi öllum innanlandstakmörkunum síðari hlutann í júní þegar um 75% þjóðarinnar hafi fengið a.m.k. einn bóluefnaskammt. Áætlunin verður birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda og lýkur umsagnarfresti 4. […]
Hjólað í vinnuna 2021 hefst 5. maí
Nú styttist í að vinnustaðakeppnin Hjólað í vinnuna 2021 hefjist í átjánda sinn en að þessu sinni fer keppnin fram frá 5. – 25. maí. Opnað verður fyrir skráningu þann 21. apríl og hvetur Hafnarfjarðarbær alla áhugasama til að skrá sig strax til leiks í þessu hvetjandi og góða verkefni Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands. Hugum […]
Hreinsunardagar 2021 – gámar við alla grunnskóla
Dagana 21. maí – 24. maí 2021 standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni HREINSUM HAFNARFJÖRÐ en þá geta íbúar í Hafnarfirði losað sig við garðúrgang í gám við grunnskóla hverfisins. Gámarnir verða við skólana frá kl. 17 föstudaginn 21. maí til loka dags mánudaginn 24. maí. Íbúar í Hafnarfirði eru hvattir til að nýta […]