Unnið er að lagfæringu og endurnýjun leikvalla um Hafnarfjörð. Í vikunni kláruðu vaskir starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar ásamt verktökum endurnýjun á opnum leik- og sparkvelli við Einarsreit. Þar var fyrir malarvöllur og gömul leiktæki sem máttu muna sinn fífil fegurri. Það vildi svo til að verið var að endurnýja gervigrasið á KSÍ sparkvellinum við Áslandsskóla og þar […]
Flokkur: Fréttir
Mælistika á bókasafninu
Á Bókasafni Hafnarfjarðar hefur verið sett upp tveggja metra há mælistika. Hugmyndin er að börn sæki sér bók á Bókasafninu og kanni hæð sína í leiðinni. Í næstu heimsókn á Bókasafnið geta þau þá mælt sig aftur og athugað hvort þau hafi stækkað frá því síðast. Stikan gerir þó ráð fyrir fólki á öllum aldri […]
Tuk tuk rafhjólið er á fullri ferð um Hafnarfjörð í sumar
Fagurbláa Tuk tuk rafhjólið verður á ferð um bæinn í sumar og verður notað sem færanleg upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn, gesti og gangandi. Meðal annars til að dreifa bæklingum, fróðleik og hugmyndum til þeirra sem eru að ferðast um bæinn. Hjólið fer víðsvegar um Hafnarfjörðinn, á helstu ferðamannastaði og viðburði í grennd við miðbæinn. Það er […]
Ung og sexí – Skapandi Sumarstörf
Félagarnir Kolbeinn Sveinsson og Einar Baldvin Brimar Þórðarson hafa í sumar, á vegum Skapandi Sumarstarfa, unnið við skrif að Íslenskum söngleik um ungt fólk sem mun bera nafnið Ung og sexí. Nafn söngleiksins kemur frá laginu Ung og sexí, eftir hljómsveitina Kef LAVÍK. Hugmyndin að söngleiknum hefur fengið að malla í rúm tvö ár Hugmyndin […]
Samkomutakmarkanir frá og með 25. júlí
Frá og með sunnudeginum 25. júli taka gildi hertar aðgerðir vegna Covid-19 sem standa í þrjár vikur út 13. ágúst nk. Þessar aðgerðir hafa í för með sér breytingar á ýmissi þjónustu sveitarfélagsins m.a. í sundlaugum og söfnum. Almennar fjöldatakmarkanir verða 200 manns. Börn fædd 2016 og síðar eru undanþegin. Nándarregla verður almennt 1 metri. […]
Mikil ánægja meðal foreldra barna á frístundaheimilum
Markmiðið er að hvert og eitt barn fái að njóta sín og þroskast í umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu Frístundaheimilin eru fyrir börn í 1. – 4. bekk og starfa við alla grunnskóla í Hafnarfirði. Heimilin eru opin eftir að skóla lýkur til kl. 17 alla virka daga og bjóða upp á […]
Snyrtileikinn 2021 – tilnefningar
Bentu á þann sem að þér þykir bestur! Hafnarfjarðarbær leitar til íbúa og annarra áhugasamra eftir tilnefningum til viðurkenninga fyrir fallega og vel hirta garða, götur og opin svæði eða stofnanalóðir í Hafnarfirði. Val til viðurkenninga byggir eingöngu á innsendum tillögum og því eru íbúar, starfsmenn og aðrir áhugasamir hvattir til virkrar þátttöku. Vertu til […]
Nýtt salernishús við Hvaleyrarvatn
St. Georgsgildið í Hafnarfirði reisir nýtt salernishús við Hvaleyrarvatn Í lok maí var nýtt hús, sem hýsir hvorutveggja salerni og aðstöðu til uppvasks og áfyllingar á vatni, tekið í notkun við sunnanvert Hvaleyrarvatn, fyrir neðan skátaskálann Skátalund. Salernishúsið er samstarfsverkefni St. Georgsgildisins í Hafnarfirði og Hafnarfjarðarbæjar og er öllum opið frá kl. 8-22 alla daga. […]
Trjágróður og skjólveggir við lóðamörk
Garðyrkjustjóri og umhverfis- og skipulagsþjónusta Hafnarfjarðar vilja minna bæjarbúa á nokkur atriði sem vert er að hafa í huga varðandi trjágróður við lóðamörk og byggingu skjólveggja. Hugum að gróðri að lóðamörkum Trjágróður sem vex út fyrir lóðarmörk getur verið verið hamlandi og jafnvel skaðlegur fyrir gangandi, hjólandi eða akandi vegfarendur og getur skyggt á umferðarmerki, […]
Svenný – Skapandi sumarstörf
Götulistamaðurinn, Svenný, er hluti af skapandi sumarstörfum hjá Hafnarfjarðarbæ í sumar. Unga tónskáldið og söngvarinn Sveinn Ísak Kristinsson, betur þekktur undir listamannsnafninu, Svenný, hefur spilað heillandi og ljúfa tóna víðsvegar um Hafnarfjörð í sumar á svokölluðum pop-up tónleikum. Svenný spilar á píanó ásamt því að syngja frumsamin lög. Hún hefur haldið stutta tónleika, sem eru […]