Dagur Norðurlanda er haldinn hátíðlegur þann 23. mars ár hvert. Í ár eru 70 ár frá því að Hafnarfjörður gerðist aðili að norrænu vinabæjarkeðjunni með Frederiksberg í Danmörku, Uppsala í Svíþjóð, Bærum í Noregi og Hämeenlinna í Finnlandi. Þá á Hafnarfjörður vinabæina Tvöroyori í Færeyjum og Illulissat í Grænland. Samvinna á milli bæjanna byrjaði eftir heimsstyrjöldina síðari þegar […]
Flokkur: Fréttir
Við minnum á Covid19 samfélagssáttmálann
Að gefnu tilefni er meðfylgjandi endurbirt með vinsamlegri beiðni um fulla og virka þátttöku allra. Í ljósi frétta síðustu daga er rétt að minna á samfélagssáttmálann. Sáttmála sem gilt hefur frá því að Covid19 barst til landsins í mars 2020. Við minnum á samfélagsáttmálann We would like to remind you about the community pledge Chcielibyśmy […]
Ratsjáin fyrir ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu
Í gær skrifuðu Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastóri SSH og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans, undir samning um Ratsjánna á höfuðborgarsvæðinu. Ratsjáin er nýsköpunar- og þróunarverkefni Íslenska ferðaklasans og er um að ræða ákveðið verkfæri ætlað stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum sem vilja auka nýsköpunarhæfni sína, hraða mikilvægum breytingaferlum og öðlast aukna yfirsýn og […]
Haustsýning Hafnarborgar 2021 – vinningstillaga
Listráð Hafnarborgar hefur valið Samfélag skynjandi vera, í sýningarstjórn Wiolu Ujazdowska og Huberts Gromny, sem haustsýningu ársins 2021. Með því að bjóða fjölbreyttum hópi – listamönnum, fræðimönnum og fleirum – að taka þátt í sýningunni vilja sýningarstjórarnir skapa vettvang þar sem margar raddir mætast og ólíkir möguleikar tjáningar og skynjunar eru skoðaðir. Þannig mun sýningin […]
Dagur vatnsins er í dag – hvers virði er vatnið?
Hvers virði er vatnið? Sameinuðu þjóðirnar hafa haldið upp á dag vatnsins þann 22. mars frá árinu 1993. Markmið Sþ með deginum er m.a. að auka vitund fólks á nauðsynlegu aðgengi að hreinu vatni en í dag skortir um 2,3 milljarð manna aðgang að öruggu vatni. Eitt af Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna er einmitt að tryggja […]
Formleg útskrift úr fjölþættri heilsueflingu 65+
Formleg útskrift úr verkefninu Fjölþætt heilsuefling 65+ í Hafnarfirði – leið að farsælum efri árum á vegum Janusar heilsueflingar fór fram í Hafnarborg þriðjudaginn 2. mars . Þetta er þriðji hópurinn sem nær þessum áfanga en verkefnið hóf göngu sína í upphafi árs 2018. Hluti af hópi þátttakenda sem lokið hafa þessu tveggja ára verkefni […]
Hafnarfjarðarstíll og Stíll 2021 – sirkus er þemað í ár
Hafnarfjarðarstíll var haldinn í félagsmiðstöðinni Setrinu í Setbergsskóla í byrjun mars. Hér er um að ræða metnaðarfulla hönnunarkeppni þar sem keppt er í hár, förðun og hönnun og munu keppendur í Hafnarfjarðarstíl taka þátt í Stíl 2021 – hönnunarkeppni unga fólksins – sem fram fer á morgun laugardaginn 20. mars. Þema keppninnar í ár er […]
Kortavefur Hafnarfjarðar er öflug rauntímaveita
Á kortavefnum er hægt að skoða Hafnarfjörð og umhverfið í nýju ljósi Kortavefurinn er öflugt verkfæri til að kynnast bænum okkar betur. Hafnarfjarðarbær leggur sífellt meiri og ríkari áherslu á stafræna þjónustu og miðlun fyrir íbúa bæjarins og aðra hagsmunaaðila. Síðustu mánuði hefur mikil vinna átt sér við að uppfæra, fínpússa, stækka og efla kortavef […]
Myndlistarmenn ársins 2021 sýna í Hafnarborg
Laugardaginn 20. mars verður sýningin Töfrafundur – áratug síðar opnuð í Hafnarborg eftir spænsk-íslenska myndlistartvíeykið og handhafa Íslensku myndlistarverðlaunanna 2021, Libiu Castro & Ólaf Ólafsson, ásamt hinum teygjanlega listamanna- og aktívistahóp Töfrateyminu. Nú eru tíu ár liðin síðan listamennirnir héldu síðast einkasýningu í Hafnarborg, þá byggða á stjórnarskránni frá 1944, og eins er áratugur síðan […]
Á þitt barn rétt á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrk?
Information in English (easy to translate to more languages) Opið er fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrk fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum til og með 14 .apríl. Verkefnið hefur það að markmiði að jafna tækifæri þeirra fjölskyldna sem tekjulægri eru til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Vakin er athygli á því […]