Hafnarfjarðarbær kallar eftir ábendingum og athugasemdum frá íbúum um úrbætur eða lagfæringar í nærumhverfinu sem gætu aukið enn frekar öruggi íbúa og annarra. Íbúar hverfa og starfsfólk fyrirtækja þekkja nærumhverfi sitt vel og eru best til þess fallnir að benda á það sem betur má fara til að koma í veg fyrir smærri sem stærri […]
Flokkur: Fréttir
Nýsköpun í öldrunarþjónustu verður til á gamla Sólvangi
Heilbrigðisráðuneytið og Hafnarfjarðarbær hafa gert með sér samning sem felur í sér endurgerð húsnæðis gamla Sólvangs þar sem komið verður á fót nýrri tegund sérhæfðrar þjónustu fyrir aldraða. Í húsinu verða rými til skammtíma- og hvíldarinnlagna fyrir 39 einstaklinga þar sem veitt verður létt endurhæfing og lagt mat á frekari stuðningsþarfir viðkomandi. Gert er ráð […]
Miðlun og vöktun fundargerða í skipulagsmálum
Samstarf Planitor og Hafnarfjarðarbæjar Hafnarfjarðarbær og hugbúnaðarfyrirtækið Planitor hafa gert með sér þjónustusamning um miðlun fundargerða og vöktunarþjónustu fyrir notendur þjónustu á sviði skipulags- og byggingamála. Umsækjendur geta nú fengið sjálfvirkar tilkynningar í tölvupósti um framvindu umsókna um leið og þær eru teknar til afgreiðslu á fundum skipulags- og byggingarráðs, afgreiðslufundum skipulags- og byggingarfulltrúa, í bæjarráði […]
Frisbígolfvöllur á Víðistaðatúni alvöru keppnisvöllur
Frisbígolf er kjörin íþrótt fyrir alla aldurshópa og alla fjölskylduna Frisbígolfvöllurinn á Víðistaðatúni er nú orðinn alvöru heilsárs keppnisvöllur. Sex brauta völlur var settur upp sumarið 2014 og á árinu 2020 var völlurinn stækkaður í níu brauta völl og unnið að því að setja upp heilsársteiga á allar brautir undir leiðsögn og í góðu samstarfi […]
Allt starfsfólk grunnskólanna hlaut hvatningarverðlaun
Hvatningarverðlaun foreldraráðs Hafnarfjarðar fyrir árið 2020 voru afhent á tólf stöðum í morgun. Verðlaunin hlutu kennarar og starfsfólk grunnskóla Hafnarfjarðar, auk þess sem mennta- og lýðheilsusvið Hafnarfjarðarbæjar fékk einnig verðlaun fyrir frábær störf í heimsfaraldri. Vegna samkomutakmarkana var afhendingin með örlítið breyttu sniði. Mikil gleði og þakklæti fyrir viðurkenninguna Grunnskólarnir í Hafnarfirði eru Barnaskóli […]
Órói á Reykjanesi – mikilvæg skilaboð til íbúa
Hlustum á og förum eftir ráðleggingum almannavarna Í ljósi jarðhræringa og umræðu um möguleika á gosi á Reykjanesskaga er rétt að upplýsa íbúa um eftirfarandi. Neyðarstjórn sveitarfélagsins er á vaktinni og starfar í nánu samstarfi við almannavarnir á höfuðborgarsvæðinu sem er þessa dagana, í samstarfi við landsins helstu sérfræðinga á fjölbreyttu sviði, að rýna gögn, […]
Styrkir vegna hljóðvistar 2021
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna viðgerða og framkvæmda á gluggum húsa við umferðarþungar götur. Umsóknarfrestur er til 3. maí 2021 og er sótt um rafrænt á Mínum síðum eða hér Aðgerðaáætlun gegn hávaða í Hafnarfirði á árunum 2018-2023 Gerð aðgerðaáætlunar gegn hávaða er hluti af tilskipun Evrópusambandsins um umhverfishávaða (2002/49/EC), sem var innleidd […]
Sigurður nýr sviðsstjóri stjórnsýslu
Bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum í dag að ráða Sigurð Nordal í stöðu sviðsstjóra stjórnsýslusviðs. Sigurður starfaði á árinu 2020 tímabundið við ráðgjöf og aðstoð við stjórnsýslu Hafnarfjarðarbæjar og vann þar m.a. að mikilvægum fjárhagslegum greiningum og úttektum. Sigurður mun hefja störf í mars. Sigurður Nordal er nýr sviðsstjóri stjórnsýslusviðs Hafnarfjarðarbæjar Sigurður Nordal tekur […]
Sálræn einkenni og breytingar á líðan við náttúruvá
Í jarðskjálftahrinu eins og nú gengur yfir Reykjanes og hefur áhrif víða á suðvesturhorni landsins er ekki óeðlilegt að finna fyrir sálrænum einkennum og breytingum á líðan. Það er óþægilegt að finna fyrir vanmætti sínum gagnvart náttúrunni. Mikilvægast af öllu er að finna leiðir til að halda ró sinni og hlusta á ráðleggingar almannavarna. Minnum okkur […]
Börn af erlendum uppruna og íþróttir – vertu með!
Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ) vilja vekja athygli á bæklingi sem gefinn var út árið 2019 og endurútgefinn 2021 um ávinning þess að stunda íþróttir með íþróttafélagi. Markmið bæklingsins er að ná betur til foreldra barna og ungmenna af erlendum uppruna og fræða þau um kosti þess að börn og ungmenni […]