Uppbygging að hefjast á annað þúsund íbúðum í hverfinu Byggingarfulltrúi Hafnarfjarðar veitti í upphafi vikunnar fyrsta byggingarleyfið til framkvæmda í Hamranesi, nýjasta íbúðarhúsahverfi Hafnarfjarðar. Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. (BYGG) sótti í desember 2020 um leyfi fyrir 4. hæða fjölbýlishúsi á lóðinni að Hringhamri 1 en til stendur að reisa þar hús með 24 íbúðum […]
Flokkur: Fréttir
112 dagurinn: Börn meðvitaðri og opnari um ofbeldi
Öryggi og velferð barna í öndvegi á 112-deginum 112-dagurinn er í dag 11. febrúar. Sjónum að þessu sinni er beint sérstaklega að barnavernd og öryggi og velferð barna og ungmenna. Fjallað er um efnið frá sjónarhorni barna og ungmenna, 112, opinberra aðila, viðbragðsaðila og þeirra sem veita aðstoð í tengslum við barnavernd. Á vef Neyðarlínunnar […]
Ívar Bragason er nýr bæjarlögmaður
Ívar Bragason hefur verið ráðinn bæjarlögmaður Hafnarfjarðarbæjar. Ívar hefur yfirgripsmikla þekkingu á verkefnum sveitarfélaga og hefur starfað sem lögmaður innan stjórnsýslu Hafnarfjarðarbæjar frá upphafi árs 2017. Sigríður Kristinsdóttir, fyrrum sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og bæjarlögmaður, tók í janúar 2021 við stöðu sýslumanns á höfuðborgarsvæðinu. Ívar lauk mag. jur. prófi frá Háskóla Íslands árið 2008 og öðlaðist réttindi […]
Öðruvísi Öskudagur á tímum Covid19
Hugmyndir á farsóttartímum Almannavarnir í samvinnu við Embætti landlæknis og Heimili og skóla hafa tekið saman leiðbeiningar varðandi öskudaginn sem allir viðeigandi aðilar eru vinsamlega beðnir um að taka til sín og taka virkan þátt í því verkefni að halda góðan og gleðilegan en öðruvísi Öskudag á farsóttartímum. Gerum okkur dagamun í nærumhverfinu Höldum […]
Leikskólastigið fékk Orðsporið 2021
Þann 6. febrúar var dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í 14. sinn, en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Leikskólar landsins hafa á undanförnum árum haldið upp á Dag leikskólans með margbreytilegum hætti og þannig stuðlað að jákvæðri umræðu um leikskólastarfið. Leikskólastigið fær Orðsporið 2021 Í tilefni dagsins var Orðsporið veitt í […]
Covid19 – varfærnar tilslakanir frá 8. febrúar
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur samþykkt tillögur sóttvarnalæknis sem fela í sér varfærnar tilslakanir á samkomutakmörkunum frá 8. febrúar. Almennar fjöldatakmarkanir verða áfram 20 manns en með rýmri undantekningum en hingað til. Reglur um 2 metra nálægðarmörk og grímuskyldu verða óbreyttar. Sjá tilkynningu á vef Stjórnarráðsins Gildistími til og með 3. mars næstkomandi Heimilt verður að […]
Forvarnanámskeið gegn sjálfsskaða fyrir ungmenni
Hafnarfjarðarbær verður fyrst sveitarfélaga hér á landi til að þróa sex vikna forvarnanámskeið fyrir 13-14 ára ungmenni sem mörg hver upplifa sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaða. Þessum hópi verða veitt verkfæri til að takast á við ólíkar áskoranir í lífinu, byggja upp þrautseigju, seiglu og efla sjálfstraust og tilfinningafærni. Námskeiðið er írskt að uppruna og hefur verið […]
Dagur leikskólans er 6. febrúar! Til hamingju!
6. febrúar er dagur leikskólans en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar í leikskólastarfi fyrstu samtökin sín. Dagurinn er haldinn hátíðlegur um land allt til að vekja sérstaka athygli á leikskólastiginu, mikilvægi þess og gildi fyrir fjölskyldur í landinu og fyrir íslenskt atvinnulíf. Hefð hefur skapast fyrir því að halda upp á daginn með fjölbreyttum […]
Vetrarhátíð er hafin – snjöll og sniðug upplifun í ár
Vetrarhátíð hófst í dag og mun standa yfir til sunnudags á öllu höfuðborgarsvæðinu. Í ár er áhersla lögð á útiveru og upplifun, list í almannarými, útilistaverk, menningarmerkingar og ljóslistaverk. Gestir hátíðarinnar í Hafnarfirði eru hvattir til að upplifa ljósalist, taka þátt í fjölskyldusmiðju og snjallleiðsögn um útilistaverk, skella sér í bílabíó og á síðdegistónleika eða […]
Vetrarhátíð í Hafnarfirði
Information in English about Winter light festival 2021 Vetrarhátíð verður haldin dagana 4. – 7. febrúar 2021. Vegna sóttvarnaráðstafana verður hátíðin með breyttu sniði í ár. Lögð verður áhersla á list í almannarými, útilistaverk, menningarmerkingar og ljóslistaverk. Ljósalist Í Hafnarfirði verður Flensborgarskólinn og Hamarinn upplýstir í einkennislitum Vetrarhátíðar, grænum og fjólubláum, og listaverkum úr safneign […]