Flokkur: Fréttir

Skarðshlíðarhverfi í Hafnarfirði að seljast upp

Á árinu 2020 var úthlutað 24 lóðum í Skarðshlíðarhverfi undir 38 íbúðir og í 1. áfanga í Hamranesi 8 fjölbýlishúsalóðum fyrir alls 296 íbúðir. Allar einbýlishúsalóðir Skarðshlíðar eru seldar og hver að verða síðastur til að tryggja sér lóð undir sérbýli á svæðinu. Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í gær voru samþykktar umsóknir um 14 lóðir. […]

Forvarnarnám gegn sjálfsskaða og sjálfsvígum

Forvarnarnám gegn sjálfsskaða og sjálfsvígum fyrir nemendur í grunnskólum Píetasamtökin , í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ og samstarfsaðila í Litháen og á Írlandi, fengu nýlega 25 milljóna króna styrk í gegnum Erasmus+ menntaáætlun ESB til þess að yfirfæra og þróa áfram námsefni og reynsluprófa námskeið fyrir 13-14 ára ungmenni. Verkefnið hófst formlega í nóvember síðastliðnum. Verkfæri […]

Innritun nemenda í grunnskóla haustið 2021

Innritun nemenda í grunnskóla haustið 2021 Information in English (more languages available) Opnað hefur verið fyrir innritun barna sem eru að fara í 1. bekk grunnskóla í Hafnarfirði haustið 2021 og er fyrsta viðmið um umsóknarfrest 1. febrúar. Grunnskólar Hafnarfjarðarbæjar eru opnir öllum börnum óháð búsetu í bænum og eru foreldrar hvattir til að kynna […]

Bjóða öllum skólum landsins nýtt matstæki

Þrjú sveitarfélög bjóða öllum skólum landsins nýtt matstæki þeim að kostnaðarlausu Frá haustdögum 2016 hafa sveitarfélögin Árborg, Hafnarfjörður og Reykjanesbær verið í faglegu samstarfi um þýðingu og staðfæringu á stöðumatstæki sem nýtist skólum til að leggja mat á námshæfni, þekkingu og reynslu nemenda af erlendum uppruna á þeirra tungumáli. Í lok ársins 2018 bættist síðan […]

Skrifað undir viljayfirlýsingu við Icelandair

Hafnarfjarðarbær og Icelandair Group skrifa undir viljayfirlýsingu um framtíðaruppbyggingu í Hafnarfirði Hafnarfjarðarbær og Icelandair Group undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um framtíðaruppbyggingu á höfuðstöðvum Icelandair að Flugvöllum 1 í Hafnarfirði. Fyrirtækið er þegar með hluta starfsemi sinnar að Flugvöllum og ráðgerir flutning og þar með sameiningu starfsstöðva á höfuðborgarsvæðinu í síðasta lagi í lok árs 2023. […]

Styrkir til menningarstarfsemi

Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna, viðburða og samstarfssamninga á sviði menningar og lista í Hafnarfirði. Umsóknum skal skila inn með rafrænum hætti til og með 15. febrúar 2021. Tvisvar á ári auglýsir menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar eftir umsóknum um styrki til menningarstarfsemi og eflingar á hafnfirsku menningarlífi. Markmiðið er […]

Takmarkanir á samkomum rýmkaðar frá 13.janúar

COVID-19: Takmarkanir á samkomum rýmkaðar frá 13. janúar Sjá tilkynningu á vef Stjórnarráðsins frá 8. janúar 2021 Fjöldatakmarkanir verða 20 manns, heilsu- og líkamsræktarstöðvum verður gert kleift að hefja starfsemi á ný en með ströngum skilyrðum og skíðasvæðunum sömuleiðis. Íþróttastarf barna og fullorðinna verður heimilað að uppfylltum skilyrðum og sömuleiðis íþróttakeppnir án áhorfenda. Fjöldamörk í […]

Starf sviðsstjóra stjórnsýslusviðs laust til umsóknar

Dómsmálaráðherra hefur skipað Sigríði Kristinsdóttur í embætti sýslumanns á höfuðborgarsvæðinu frá og með 1. janúar 2021.  Sigríður hefur starfað sem bæjarlögmaður Hafnarfjarðar frá árinu  2015 og sem sviðsstjóri stjórnsýslusviðs frá 2016 auk þess að vera staðgengill bæjarstjóra. Sigríður hefur látið af störfum hjá Hafnarfjarðarbæ og er staða sviðsstjóra stjórnsýslusviðs Hafnarfjarðarbæjar nú laus til umsóknar.   Umsóknarfrestur […]

Á þitt barn rétt á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrk?

Information in English (easy to translate to more languages)  Opið er fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrk fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum. Verkefnið hefur það að markmiði að jafna tækifæri þeirra fjölskyldna sem tekjulægri eru til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.  Vakin er athygli á því að umsóknarfrestur rennur út 1. […]

Fjölgun úrræða fyrir fólk með heilabilun

Hafnarfjarðarbær og Sóltún öldrunarþjónusta ehf. undirrituðu í dag samning um rekstur sérhæfðrar dagdvalar á Sólvangi. Samningurinn tekur til reksturs tólf sérhæfðra dagdvalarrýma á Sólvangi og hefur það að markmiði að tryggja öldruðum einstaklingum með heilabilun tiltekna þjónustu og styðja við aðstandendur þeirra með rekstri sérhæfðrar dagdvalar. Alzheimersamtökin faglegur bakhjarl Hafnarfjarðarbær leggur til fullbúið og nýlega […]