Frestur til tilnefninga fyrir best skreytta jólahúsið í Hafnarfirði rennur út í dag en senda má ábendingar á jolathorp@hafnarfjordur.is til og með 15. desember. Í nóvember voru Hafnfirðingar og vinir Hafnarfjarðar hvattir til þess að setja upp stóru jólagleraugun og senda inn ábendingar um þau hús í Hafnarfirði sem þykja bera af í jólaskreytingunum þetta […]
Flokkur: Fréttir
Lækur er athvarf fyrir fólk með geðrænan vanda
Lækur er athvarf fyrir einstaklinga með geðrænan vanda . Athvarfið flutti nýlega í Staðarberg 6 og er aðstaðan orðin hin glæsilegasta. Eitt helsta hlutverk Lækjar er að vera öruggur og góður vettvangur fyrir fólk með það fyrir augum að draga úr félagslegri einangrun, ýta undir samskipti við aðra og styrkja andlega og líkamlega heilsu þar […]
Tónleikaröðin Streymi – ungt listafólk stígur á stokk
Hamarinn og Músík og mótor standa fyrir tónleikaröð sem gengur undir nafninu ,,Streymi“ og verður þeim streymt beint frá ungmennahúsinu Hamrinum í janúar. Stefnt er af því að vera með tónleika föstudagana 15., 22. og 29. janúar. Hljómsveitin Blóðmör, sem sigraði í Músíktilraunum í fyrra, er dæmi um hljómsveit sem hefur verið að æfa í […]
Styrkir úr sjóði Friðriks afhentir
Föstudaginn 27. nóvember voru 140 ár liðin frá fæðingu Friðriks Bjarnasonar, organista og tónskálds en helsta lag/ljóð þeirra Guðlaugar Pétursdóttur eiginkonu hans er héraðssöngur okkar Hafnfirðinga: „Þú hýri Hafnarfjörður“. Þau hjón gáfu Hafnarfjarðarbæ svo til allar eigur sínar áður en þau létust og af gjafafé þeirra stofnaður sjóður til styrktar og eflingar sönglífi í Hafnarfirði. […]
Starfsánægjan hefur góð áhrif á börnin
Í fimm ár hefur starfsfólki í leikskólum Hafnarfjarðarbæjar staðið til boða námsstyrkir frá bænum til þess að stunda nám í leikskólakennarafræðum. Markmiðið með framtakinu er að auka hlutfall fagmenntaðra í leikskólum sveitarfélagsins og þar með í hópi leikskólakennara. Bæjarblaðið Hafnfirðingur hitti tvö af þeim 30 sem hafa tekið þessum möguleika fegins hendi þetta skólaár, þau […]
Velkomin í jólaævintýralandið í Hellisgerði
Sannkallað jólaævintýraland er risið í Hellisgerði, þessum nær 100 ára gamla og gullfallega lystigarði Hafnfirðinga í miðbæ Hafnarfjarðar. Við inngang í Hellisgerði frá Reykjavíkurvegi er nú búið að reisa stórt rautt jólahjarta og síðan tekur við ævintýraveröld ljósa og lystisemda. Ljósaseríur og ljósafígúrur sem gleðja augað og andann. Hjónin og Hafnfirðingarnir Jóhanna Guðrún og Davíð […]
Laufléttur og snjall ratleikur um Hellisgerði
Í jólaævintýragarðinum Hellisgerði er að finna fallega skreytta hátíðarveröld, leiksvæði og einstaka náttúru, rétt við miðbæinn. Þar má einnig finna ýmiss konar jólaverur. Búið er að setja upp laufléttan og snjallan ratleik sem Hafnfirðingar og vinir Hafnarfjarðar á öllum aldri geta tekið þátt í sem þó er sérstaklega sniðinn að þátttöku þeirra sem yngri eru. […]
Tilslakanir á sóttvarnarráðstöfunum frá 10. desember
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið breytingar á sóttvarnarráðstöfunum sem taka gildi 10. desember næstkomandi. Varfærnar tilslakanir verða gerðar á reglugerð um takmarkanir á samkomum vegna farsóttar og gilda breytingarnar til 12. janúar. Reglugerð um takmarkanir á skólahaldi vegna farsóttar verður að mestu óbreytt til áramóta en gert er ráð fyrir að kynna fljótlega nýjar reglur […]
Viðhald á forvinnslulínu í móttöku- og flokkunarstöð
Sjá tilkynningu á vef Sorpu Viðhald stendur yfir á nýju vinnslulínunni í móttöku-og flokkunarstöð SORPU sem stendur til sunnudagsins 13. desember. Íbúar í Garðabæ, Hafnarfirði, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi eru því beðnir um að henda ekki plasti í pokum með almenna sorpinu eins og venjulega meðan á þessu stendur, heldur fara með það í grenndargáma eða […]
Sundlaugar opna á ný
Breytingar á sóttvarnaráðstöfunum sem taka gildi á morgun fimmtudaginn 10. desember heimila opnun sundlauga og baðstaða fyrir allt að 50% af hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi. Gildistími nýrrar ráðstöfunar er til og með 12. janúar 2021 nema annað sé auglýst. Börn fædd 2005 og síðar eru ekki talin með í gestafjölda. Sérstök athygli er vakin á […]