Opnað fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrk vegna áhrifa af Covid19 Sjá tilkynningu á vef Stjórnarráðs Íslands Opnað hefur verið fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrkjum fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum þar sem markmiðið er að jafna tækifæri þeirra til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Styrkirnir koma til viðbótar hefðbundnum […]
Flokkur: Fréttir
Söfnin opna aftur 18. nóvember
Söfnin í Hafnarfirði opna á ný frá og með miðvikudeginum 18. nóvember þegar varfærnar tilslakanir á gildandi samkomutakmörkunum taka gildi. Grímuskylda er á söfnunum, tveggja metra regla og fjöldatakmörkun miðast við 10 manns. Bókasafn Hafnarfjarðar Bókasafn Hafnarfjarðar verður fyrst um sinn opið frá kl. 13-17 virka daga og frá kl. 11-15 laugardaga. 2. hæð verður […]
Það er tungunni tamast sem hjartanu er kærast
Dagur íslenskrar tungu 16. nóvember -Leifur S. Garðarsson skólastjóri í Áslandsskóla skrifar: Það er tungunni tamast sem hjartanu er kærast Á 25 ára afmæli Stóru upplestrarkeppninnar Á degi íslenskrar tungu setjum við árlega Stóru upplestrarkeppnina í Áslandsskóla. Í keppninni taka ár hvert þátt nemendur í 7. bekk skólans. Markmið keppninnar er að auka hlut talaðs […]
Óbreytt skólastarf fram að helgi og ekki frístundabíll
Enn hafa verið boðaðar breytingar á reglugerð sem snúa að starfi grunnskóla sökum nýrra sóttvarnarreglna. Staðan er hins vegar óljós þar sem skólar hafa ekki fengið staðfestar upplýsingar um í hverju breytingarnar felast. Þess vegna hefur verið tekin sú ákvörðun að skólastarf í grunnskólum Hafnarfjarðar á morgun, miðvikudag 18. nóvember og fram að helgi, verði […]
Dagur íslenskrar tungu er í dag. Til hamingju!
Til hamingju með daginn! 16. nóvember er dagur íslenskrar tungu og er dagurinn jafnframt fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar skálds. Dagurinn hefur um árabil verið afar hátíðlegur og viðburðaríkur og þá sér í lagi í hafnfirskum leik- og grunnskólum. Á þessum degi hefst ræktunarhluti Litlu og Stóru upplestrarkeppninnar auk þess sem mörg önnur skemmtileg verkefni eru sett […]
Gestakomur í Seltúni taldar með sjálfvirkum teljara
Ferðamálastofa hefur sett upp sítengdan teljara í Seltúni til þess að fylgjast með fjölda gesta á þessum vinsæla áfangastað ferðamanna. Tölurnar eru birtar í mælaborði ferðaþjónustunnar sem er vefsíða þar sem tölulegar upplýsingar um atvinnugreinina eru birtar með myndrænum hætti. Hægt er að skoða fjölda ferðamanna eftir tíma sólarhrings, dögum, mánuðum og árum eftir því […]
COVID-19: Varfærnar tilslakanir 18. nóvember
Sjá tilkynningu á vef Stjórnarráðsins Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur sóttvarnalæknis sem fela í sér varfærnar tilslakanir á gildandi samkomutakmörkunum. Breytingarnar taka gildi 18. nóvember. Þær eru helstar að íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna í leik- og grunnskólum verður heimilt á ný. Í framhaldsskólum verða fjöldamörk aukin í 25. Hægt verður að hefja ýmsa þjónustustarfsemi […]
UNICEF kallar eftir teikningum frá börnum og ungmennum
Ert þú skapandi ungmenni? Í tilefni af alþjóðadegi barna, sem er 20. nóvember, kallar UNICEF á Íslandi eftir teikningum frá börnum og ungmennum yngri en 24 ára þar sem viðfangsefnið er að ímynda sér þann heim sem vilji er fyrir að byggja fyrir börn eftir COVID-19 ef börn og ungmenni fengju að ráða. Efni myndanna […]
Bakverðir virkja krafta sína á öðrum vettvangi
Hjá Hafnarfjarðarbær hefur verið lagt kapp á, frá upphafi Covid19, að tryggja að ekki komi til skerðingar á samfélagslega mikilvægri þjónustu og þjónustu sem þarf að haldast órofin á öllum stigum almannavarna. Guðrún Þorsteinsdóttir, mannauðsstjóri Hafnarfjarðarbæjar segir að það hafi að mestu tekist með útsjónarsemi og hugmyndaauðgi stjórnenda og starfsfólks á hverri starfsstöð fyrir sig […]
Hugmyndir um nútímalegt bókasafn í Firði
Horft til framtíðar með hugmyndum um nútímalegt bókasafn Bæjarstjórn Hafnarfjarðar tók fyrir á fundi sínum í dag hugmyndir um að flytja Bókasafn Hafnarfjarðar úr núverandi húsnæði að Strandgötu 1 í nýtt húsnæði að Strandgötu 26-30. Vilji er fyrir því að gera skuldbindandi samkomulag milli 220 Fjarðar og Hafnarfjarðarbæjar sem byggir á hugmyndum ,,220 Fjarðar“ að […]