Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Finnbogi Örn fréttaáhugamaður og Melkorka Assa, námsmaður við Háskóla Íslands, halda nú í sumar úti Instagram síðunni Fréttir með Finnboga. Síðu sem flytur lifandi og skemmtilegar fréttir beint frá hjarta Hafnarfjarðar. Finnbogi og Melkorka, sem kynntust fyrst í Flensborgarskóla í Hafnarfirði, hófu þetta frábæra verkefni á vegum skapandi sumarstarfa hjá Hafnarfjarðarbæ í byrjun sumars og hefur það þegar leitt þau út í hin ýmsu ævintýri. Í sumar eru níu hópar skapandi sumarstarfa starfandi á vegum Hafnarfjarðarbæjar.
Finnbogi Örn fréttaáhugamaður og Melkorka Assa, námsmaður við Háskóla Íslands, halda nú í sumar úti Instagram síðunni Fréttir með Finnboga. Síðu sem flytur lifandi, fjölbreyttar og skemmtilegar fréttir frá Hafnarfirði. Finnbogi og Melkorka, sem kynntust fyrst í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði, hófu þetta frábæra verkefni á vegum skapandi sumarstarfa hjá Hafnarfjarðarbæ í byrjun sumars og hefur það þegar leitt þau út í hin ýmsu ævintýri. Í sumar eru níu hópar skapandi sumarstarfa starfandi á vegum Hafnarfjarðarbæjar.
Eftir mikinn undirbúning hófst fyrsta vika Fréttir með Finnboga mánudaginn 21. júní og þá fengu fylgjendur miðilsins að fylgjast með Finnboga m.a. taka viðtöl við starfsfólk í söfnum bæjarins og verslunarstjóra í bænum, ásamt því að fá sögu og fróðleik í tengslum við þema fyrstu vikunnar sem var merkileg hús í Hafnarfirði. Áður en formlegar tökur hófust, ákvað teymið að fjárfesta í góðum græjum og keyptu sér þrífót fyrir síma, með áföstu hringljósi. Búnaðinn nýta þau til að auðvelda sér upptökuna og bæta gæði efnisins.
Fréttir Finnboga eru strax farnar að vekja mikla og verðskuldaða athygli og aukast vinsældir miðilsins á degi hverjum, fréttahaukunum tveimur til mikillar ánægju. Tala fylgjenda á Instagram fer stöðugt hækkandi og teymið virkilega þakklátt fyrir áhugann og stuðninginn og ekki síst þau frábæru tækifæri og upplifanir sem verkefnið er að færa þeim. Eftir viðburðaríka fyrstu viku er tilhlökkun til sumarsins 2021 mikil og framtíðin sannarlega björt hjá þessum ungu fréttamiðlurum. Þema vikunnar er fjölbreytileiki hafnfirskra veitinga og veitingastaða.
Hér má fylgjast með Fréttum með Finnboga
Skapandi sumarstörf hjá Hafnarfjarðarbæ eru hluti af sumarstarfi Vinnuskóla Hafnarfjarðar. Skapandi sumarstörf eru auglýst sérstaklega og býðst einstaklingum og hópum að skila inn með umsókn sinni hugmyndum að skapandi verkefnum sem eru til þess fallin að glæða bæinn enn meira lífi yfir sumartímann, gera hann enn skemmtilegri, fallegri og fjölbreyttari með listrænum og skapandi uppákomum. Horft er sérstaklega til fjölbreytileika verkefna og þess að þau höfði til mismunandi aldurshópa og áhugasviða. Valdir hópar fá svo tækifæri til að lífga upp á mannlíf og skemmtun í hjarta Hafnarfjarðar og gleðja ferðamenn og íbúa með alls kyns uppátækjum. Fréttir með Finnboga eru eitt þessarra verkefna. Átta önnur skapandi verkefni eru starfrækt hjá Vinnuskóla Hafnarfjarðar í ár og munu þessi verkefni einnig verða kynnt á miðlum bæjarins.
Hefur þú áhuga á garðræktun? Langar þig að gera eitthvað öðruvísi og spennandi í sumar? Viltu taka þátt í verkefni…
Matjurtagarðar Hafnarfjarðarbæjar eru opnir öllum íbúum Hafnarfjarðar gegn vægu gjaldi. Hér um að ræða frábært tækifæri fyrir einstaklinga og fjölskyldur…
Kjörfundur í Hafnarfirði vegna forsetakosninganna 1. júní 2024 hefst kl. 9 og lýkur kl. 22. Kjörstaðir í Hafnarfirði eru Lækjarskóli,…
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbær veitti á dögunum sex styrki úr Húsvendarsjóði. Styrkirnir eru til viðhalds og endurbóta og námu þeir…
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti samhljóða á fundi sínum í síðustu viku að lækka gjaldskrár sveitarfélagsins frá og með 1. maí 2024.…
Hver er Ebba Katrín? „Hún er þriggja bræðra systir. Ólst upp í Setbergi í Hafnarfirði, alla mína barnæsku,“ svarar bæjarlistarmaður…
Samfélagslöggur Hafnarfjarðar heimsækja nú 7. bekki í grunnskólum Hafnarfjarðar og veita nemendunum fræðslu um ofbeldi, vopnaburð, einelti og hótanir. Samfélagslöggæsla…
Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar til verkefna og viðburða voru afhentir við hátíðlega athöfn í Hafnarborg síðasta vetrardag samhliða útnefningu…
Umsóknum um söluhús og hugmyndum að skemmtiatriðum ber að skila eigi síðar en föstudaginn 17. maí kl. 15.
Gleðilegt sumar kæru Hafnfirðingar og vinir Hafnarfjarðar. Heilsubærinn Hafnarfjörður fagnar sumarkomunni með sumarhátíð í Hafnarfirði. Hátíðarhöldin hefjast kl. 12 með…