Breytingar á sóttvarnaráðstöfunum sem taka gildi á morgun fimmtudaginn 10. desember heimila opnun sundlauga og baðstaða fyrir allt að 50% af hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi. Gildistími nýrrar ráðstöfunar er til og með 12. janúar 2021 nema annað sé auglýst. Börn fædd 2005 og síðar eru ekki talin með í gestafjölda. Sérstök athygli er vakin á […]
Flokkur: Fréttir
Litakóðunarkerfi tekið upp vegna Covid19
Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og Embættis landlæknis að COVID-19 viðvörunarkerfi sem byggir á litum líkt og veðurviðvörunarkerfi Veðurstofu Íslands. Viðvörunarkerfinu er ætlað að auka fyrirsjáanleika til lengri tíma varðandi þær aðgerðir sem grípa þarf til í baráttunni við faraldurinn og lágmarka þannig heildarskaðann sem hann veldur í samfélaginu. Kerfið verður kynnt á upplýsingafundi […]
Örstyrkir til menningar og lista á aðventunni
Viltu taka þátt í að auðga jólaandann á aðventunni? Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um örstyrki til menningarmála á aðventunni. Til þess að styðja við hafnfirskt listafólk og hafnfirska menningu verður hluta af fjármagni Jólaþorpsins í Hafnarfirði úthlutað til ýmissa verkefna sem fara fram á aðventunni 2020. Óskað er eftir hvers konar atriðum, upplifun og skemmtun […]
Kærleiksmarkaður í Haukahúsinu um helgina
Hópur kærleiksríkra kvenna á Völlunum í Hafnarfirði hefur tekið sig saman til að létta undir með nágrönnum sínum og sett upp markað í Haukahúsinu. Framtakið og markaðurinn sem gengur undir heitinu – Kærleikur 2020 – er einstakur að því leyti að allt á gjafaborðunum er ókeypis og varningurinn eingöngu hugsaður til persónulegra nota og ætlaður […]
Þróunarverkefni um snemmtæka íhlutun – mál og læsi
Frá árinu 2014 hefur Hafnarfjarðarbær markvisst unnið að innleiðingu á þróunarverkefni sem snýr að snemmtækri íhlutun hvað varðar mál og læsi í leikskólum Hafnarfjarðar. Leikskólinn Norðurberg var fyrstur leikskóla í Hafnarfirði til að innleiða verkefnið skólaárin 2014-2016 og gaf sumarið 2017 út handbók um snemmtæka íhlutun í málörvun leikskólabarna og undirbúning fyrir lestur. Í dag […]
Nýtt setur og þjónustumiðstöð í Lífsgæðasetri St. Jó
Parkinsonsetur og þjónustumiðstöð Alzheimersamtakanna rísa í Lífsgæðasetri St. Jó. Á haustfundi Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowreglunnar á Íslandi var samþykkt að styrkja bæði Alzheimer- og Parkinsonsamtökin um uppbyggingu á þjónustumiðstöð og dagdvalarrými á 3. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnarfirði. Í Lífsgæðasetri má í dag finna skapandi samfélag einstaklinga, félagasamtaka og fyrirtækja sem eiga það […]
Veitur virkja viðbragðsáætlun
– fólk hvatt til að fara sparlega með heitt vatn Sjá tilkynningu á vef Veitna Í ljósi þess að næstu daga stefnir í eitt mesta kuldakast á suðvesturhorni landsins síðan árið 2013 hafa Veitur virkjað viðbragðsáætlun í rekstri hitaveitunnar. Sú áætlun gengur meðal annars út á að hvetja fólk til þess að fara sparlega með […]
Óbreyttar sóttvarnaráðstafanir til 9. desember
COVID 19: Óbreyttar sóttvarnaráðstafanir til 9. desember Sjá tilkynningu á vef Stjórnarráðsins Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja gildandi reglugerðir um takmarkanir á samkomum og skólastarfi óbreyttar til 9. desember næstkomandi. Þetta er gert í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis sem ræður gegn því að slaka á sóttvörnum núna vegna þess hvernig faraldurinn hefur þróast síðustu daga. […]
Jól og áramót 2020 á tímum Covid19
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og sóttvarnalæknir hafa gefið út leiðbeiningar fyrir jól og áramót . Allar nýjustu upplýsingar er að finna á Covid.is Það sem hafa þarf í huga yfir hátíðarnar vegna COVID-19 Aðventan er gengin í garð og undirbúningur hátíðanna nær fljótlega hámarki. Rík hefð er fyrir því að fólk komi saman og njóti samverunnar og alls […]
Nútímalegt bókasafn rís í Hafnarfirði
Horft til framtíðar með áformum um nútímalegt bókasafn Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum á miðvikudag fyrirliggjandi hugmyndir um að flytja Bókasafn Hafnarfjarðar úr núverandi húsnæði að Strandgötu 1 í nýtt húsnæði að Strandgötu 26-30. Skrifað verður undir skuldbindandi samkomulag milli 220 Fjarðar og Hafnarfjarðarbæjar sem byggir á hugmyndum ,,220 Fjarðar“ að reisa allt að […]