Starfsfólk og nemendur á Baggalá á leikskólanum Álfabergi opnuðu þann 1. desember sl. fyrsta pakkann á málörvunar- og jóladagatali deildarinnar. Í desember er áhersla lögð á leikföng og liti í orðaforða barnanna og var ákveðið að nota tækifærið og tengja jóladagatalið og hið gullfallega tré þess beint við það. Hugmyndasmiðurinn og fagurkerinn á bak við […]
Flokkur: Fréttir
COVID-19 hraðpróf í boði í Hafnarfirði
Frá og með morgundeginum, föstudeginum 17. desember, verður hægt að fara í hraðpróf vegna COVID-19 í Hafnarfirði. Í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ hefur TestCovid.is, sem er hluti af Öryggismiðstöðinni, sett upp hraðprófunarstöð að Reykjavíkurvegi 76. Hraðprófunarstöðin verður í stærra lagi og kemur til með að anna allt að 1000 prófum á dag. Opið verður alla daga […]
Gítarsveit tónlistarskólans tók þátt í jólatónleikum Sinfó
Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands fóru fram í Eldborgarsal Hörpu um nýliðna helgi. Gítarsveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar voru meðal þátttakenda í ár en boð um þátttöku í þessum glæsilegum tónleikum þykir mikill heiður enda kröfur um gæði og góða hæfileika miklar. Gítarsveitin hefur staðið í ströngu við æfingar síðustu daga, vikur og mánuði en hópurinn æfði í fyrsta […]
Hjartasvellið opnar um helgina!
Komdu og dragðu djúpt andann á skautum í hjarta Hafnarfjarðar! Frá og með laugardeginum 11. desember og fram í janúar mun Hafnarfjarðarbær í samstarfi við Bæjarbíó hafa opið 200 fermetra skautasvell á bílastæðinu beint fyrir aftan Bæjarbíó. Svellið, sem fengið hefur nafnið Hjartasvellið, er frábær viðbót við jólabæinn Hafnarfjörð og mun svellið tengja enn betur […]
Stefnumót við jólabækurnar
Lestur er lífsins leikur Öllum bekkjum Hvaleyrarskóla er boðið að mæta á bókasafn skólans til að fá kynningu á nýjustu bókunum. Hafa umsjónarkennarar verið duglegir að bóka tíma og nemendur notið þess að fá kynningu á bókunum og í kjölfarið skoðað þær og skráð á óskalista séu þetta bækur sem þeim langar í í jólagjöf. […]
Áhugaverð saga í gömlum húsum – jólin í byggðasafninu
Jólin í Byggðasafni Hafnarfjarðar Þeir sem ætla að leggja leið sína í Hellisgerði fyrir jólin og skoða dásamlegar skreytingar ættu að koma við í Byggðasafni Hafnarfjarðar. Þar er ekki síður skreytt og innandyra áhugaverðar sýningar fyrir allan aldur. Björn Pétursson bæjarminjavörður segir að fallegar jólaskreytingar séu komnar utan á húsið. Sérstök jólaútstilling er á Beggubúð, […]
Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar samþykkt
Uppbygging nýrra hverfa mun leiða til verulegra fjölgunar íbúa á næstu árum Markviss viðbrögð við heimsfaraldri veita svigrúm til þess að snúa vörn í sókn Áhersla lögð á að verja hagsmuni íbúa án þess að skuldsetja bæjarfélagið Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar var lögð fram til seinni umræðu og samþykkt á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í gær […]
Jólahjarta Hafnarfjarðar í Bæjarbíó á aðventunni
Bæjarbíó og Mathiesen stofan skipa mikilvægan sess í hjörtum bæjarbúa og vina Hafnarfjarðar sem þangað sækja viðburði og upplyftingu á aðventunni. Ýmsir dagskrárliðir eru í boði sem fastagestir geta stólað á, ár eftir ár, en einnig er bryddað upp á nýjungum eins og rekstraraðilunum einum er lagið. Í ár töfrar Bæjarbíó fram tónlistarhátíðina Jólahjarta Hafnarfjarðar […]
COVID-19: Óbreyttar ráðstafanir næstu tvær vikur
COVID-19: Óbreyttar sóttvarnaráðstafanir næstu tvær vikur Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja óbreytta gildandi reglugerð um samkomutakmarkanir. Almennar fjöldatakmarkanir verða því áfram 50 manns en með möguleika á hraðprófsviðburðum, áfram gilda 1 metra nálægðarmörk, reglur um grímunotkun o.s.frv. Þessi ákvörðun er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis sem telur nauðsynlegt að viðhalda óbreyttum takmörkunum […]
Viðbótarstyrkur vegna frístunda haustið 2021
Á barnið þitt rétt á viðbótarstyrk vegna frístunda haustið 2021? Hafnarfjarðarbær vekur sérstaka athygli á því að börn fædd árin 2006-2015 sem eru með lögheimili á tekjulágum heimilum geta átt rétt á 25.000.- kr. viðbótarstyrk vegna íþrótta- og tómstundaiðkunar haustið 2021. Um er að ræða styrk frá félagsmálaráðuneyti vegna COVID-19 sem sveitarfélögin sjá um að […]