Category: Fréttir

Á að reisa grindverk eða skjólvegg?

Stendur til að reisa grindverk eða koma fyrir skjólvegg?  Um slíkar framkvæmdir gilda ákveðnar reglur sem vert er að kynna sér áður en farið er af stað. Huga þarf að lóðarmörkum hvort heldur sem er við lóð nágrannans eða að bæjarlandi. Heimilt er að reisa skjólvegg og girðingar sem eru allt að 1,8m að hæð […]

Ertu að nota ferðaþjónustu fatlaðra í Hafnarfirði?

Hafnarfjarðarbær undirbýr nú nýtt útboð á ferðaþjónustu fatlaðra í Hafnarfirði. Við viljum gjarnan heyra frá notendum, aðstandendum og öðrum þeim sem þekkja og nota akstursþjónustuna. Ný facebook síða er vettvangur til þess að koma á framfæri ábendingum til starfsmanna og starfshópsins sem hefur umsjón með verkefninu. Einnig er hægt að senda ábendingar á netfangið: hafnarfjordur@hafnarfjordur.is […]

Bjartir dagar 2019

Framundan eru Bjartir dagar í Hafnarfirði pakkaðir af fjölbreyttum viðburðum sem stofnanir bæjarins, íþróttafélög, félagasamtök, fyrirtæki og einstaklingar standa fyrir. Sérstök áhersla er lögð á þátttöku barna og unglinga enda er Sumardagurinn fyrsti hluti af hátíðarhöldunum. Ýmsir tónlistarviðburðir skipa stóran sess í dagskrá Bjartra daga í ár með tónlistarhátíðina HEIMA í broddi fylkingar og á […]

Sund og menning um páskana

Afgreiðslutími sundstaða og menningarstofnana um páskana er eftirfarandi:   Skírdagur18. apríl Föstudagurinnlangi 19. apríl Laugardagur20. apríl Páskadagur21. apríl Annar í páskum22. apríl Ásvallalaug 8:00-17:00 Lokað  8:00-18:00  8:00-17:00  8:00-17:00 Suðurbæjarlaug 8:00-17:00  8:00-17:00 8:00-18:00 Lokað  8:00-17:00 Sundhöll Lokað Lokað Lokað Lokað Lokað Bókasafn Lokað Lokað Lokað Lokað Lokað Byggðasafn Lokað Lokað 11:00-17:00  Lokað  11:00-17:00 Hafnarborg 12:00-17:00  Lokað  12:00-17:00 […]

Kaldárselsvegur – lokanir vegna framkvæmda

Vegna komandi malbikunarframkvæmda við Kaldárselsveg á tímabilinu frá 22. apríl til 6. maí er ekki hjá því komist að röskun verði á umferð um svæðið vegna lokana á vegköflum sem merktir eru á yfirlitsmynd. Röskun á umferð vegna lokana verður um eftirtaldar götur en þó á mismunandi tímum: Kaldárselsvegur Elliðavatnsvegur Brekkuás Klettahlíð Framkvæmdasvæðið verður ekki lokað […]

Hvatningar- og foreldraverðlaunin til Víðistaðaskóla

Hvatningarverðlaun foreldraráðs 2019 fóru í skaut Víðistaðaskóla og Félagsmiðstöðvarinnar Hraunsins, en verðlaunin voru afhent í gærkvöldi. Að baki Jafnréttisdögunum stóðu þau Salka Sigurðardóttir, Þórunn Þórarinsdóttir, Agnes Lára Þorleifsdóttir, Ylfa Þórhildur Guðmundsdóttir, Tinna Sól Þórsdóttir, Sigrún Ásta Gunnarsdóttir og Gunnar Smári Unnarsson. Jafnréttisdagarnir fengu í verðlaun fyrirlestur að eigin vali um jafnréttismál. Foreldraverðlaun foreldraráðs 2019 hlutu […]

Börn og umhverfi fyrir ungmenni – námskeið RKÍ

<img height=”1″ width=”1″ style=”display:none” src=”https://www.facebook.com/tr?id=344679792675614&amp;ev=PageView&amp;noscript=1″ /> Börn og umhverfi hjá Rauða krossinum í Hafnarfirði verður haldið dagana 7, 8, 9 og 14. maí 2019. Með fyrirvara um næga þátttöku. Námskeiðið er ætlað ungmennum fædd á árinu 2007 og eldri (12 ára og eldri).  Kennsla fer fram í húsnæði Rauða krossins í Hafnarfirði og Garðabæ að […]

LED væðing götuljósa

Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í 1. áfanga útskipta í LED væðingu götuljósa. Áætlað er að skipta um 250 lampa á árinu 2019 og auglýsir Hafnarfjarðarbær eftir tilboðum í þessa lampa. Tilboð verða opnuð hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu þann 2. maí 2019 kl. 10:00. Beiðni um útboðsgögn skal senda á ishmael@hafnarfjordur.is

HREINSUM HAFNARFJÖRÐ – á Snapchat og Instagram

Gunnella Hólmarsdóttur mun á næstu vikum halda úti Snapchat og Instagram reikningunum: HREINSUM HAFNARFJÖRÐ.  Þar deilir hún hagnýtum leiðum og aðferðum við m.a. flokkun á heimilissorpi og plokkun í nærumhverfinu auk þess að veita önnur ráð. Gunnella Hólmarsdóttir er tveggja barna móðir í Kinnunum sem, líkt og margir aðrir, veltir því fyrir sér á degi hverjum […]

Aðrein og frárein lokaðar fimmtudaginn 11. apríl

Aðrein og frárein milli Reykjanesbrautar og Strandgötu í Hafnarfirði verða lokaðar fimmtudaginn 11. apríl. Líklegt er að svæðið verði lokað allan daginn og jafnvel undir morgun föstudaginn 12. apríl.  Verið er að grafa í sundur aðrein og frárein til að leggja niður hitaveitulögn.  Hægt er að fara um nýju mislægu gatnamótin við Hellnahraun, Hvaleyrarhverfi og […]