Prófanir á nýjum vinnslulínum í móttökustöð eru nú í fullum gangi og verða þær komnar í fullan rekstur á næstu dögum. Því geta íbúar í þeim sveitarfélögum sem skila plasti í pokum með heimilissorpi aftur farið að nýta þann möguleika. Þetta nær m.a. til íbúa í Hafnarfirði. Nýjar vinnslulínur í móttöku- og flokkunarstöðinni munu samtals […]
Flokkur: Fréttir
Nýjar reiknivélar gera gjaldskrá gegnsærri
Í sumar hafa þrjár nýjar reiknivélar litið dagsins ljós sem allar hafa það að markmiði að gera gjaldskrá Hafnarfjarðarbæjar aðgengilegri og skiljanlegri fyrir íbúa. Þegar hafa verið settar í loftið reiknivélar fyrir leikskólagjöld, frístundaheimili og fasteignagjöld. Framkvæmdin er liður í því að bæta og þróa þjónustu sveitarfélagsins með það fyrir augum að leysa sem flest […]
Takmarkanir á þjónustu sundlauga í samkomubanni
Í dag 31. júlí á hádegi taka gildi hertar aðgerðir vegna Covid-19 sem standa í í tvær vikur, út 13. ágúst nk. Þessar aðgerðir hafa í för með sér breytingar á ýmissi þjónustu sveitarfélagsins m.a. í sundlaugum. Helstu aðgerðir stjórnvalda fela m.a. í sér: Takmörkun á fjölda sem kemur saman miðast við 100 einstaklinga. Börn […]
Viðbragðsstaða vegna Covid-19
<<English below>> Í kjölfar ákvörðunar yfirvalda um hertar sóttvarnaraðgerðir sem taka gildi frá og með hádegi 31. júlí 2020 hefur Hafnarfjarðarbær farið yfir þjónustu sína í samræmi við viðbragðsáætlanir. Þjónusta sveitarfélagsins helst í megin dráttum óbreytt en vinnulag verður sniðið að nýjum samkomutakmörkunum. Starfsfólk er hvatt til að huga vel að sínum einstaklingsbundnu sóttvörnum og […]
Strandblakvöllur á Víðistaðatún
Í sumar hefur verið unnið við ýmsar framkvæmdir á Víðistaðatúni en túnið er vinsælasta útivistarsvæði Hafnfirðinga innan byggðar. Aðsókn þangað hefur vaxið mikið undanfarin ár með auknum afþreyingarmöguleikum svo sem endurbættu leiksvæði, útigrillaðstöðu, ærslabelg, aparólu, endurbótum á tennisvelli og frisbígolfvelli. Nýjasta viðbótin á Víðistaðatúni er uppsetning á strandblakneti á sandvellinum og endurnýjun á sandi þannig […]
Sumarhátíð Vinnuskólans
Sumarhátíð Vinnuskóla Hafnarfjarðar fór fram fimmtudaginn 23. júlí í blíðskaparveðri þar sem voru saman komin á fjórða hundrað ungmenni á Víðistaðatúni. Í Vinnuskólanum í ár störfuðu um 600 ungmenni í 8. til 10. bekk í almennum hópum en hlutverk þeirra er að sjá um beða- og ruslahreinsun ásamt almennri garðvinnu. Gert var út frá átta […]
Samningur undirritaður um skóla- og frístundaakstur
Föstudaginn 17. júlí undirrituðu Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri, og Pálmar Sigurðsson frá Hópbílum hf. nýjan samning um skóla- og frístundaakstur í framhaldi af útboði þar sem Hópbílar voru lægstbjóðendur. Í samningnum felst skólaakstur fyrir grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar, akstur fyrir grunnskólabörn í sérdeildum og frístundaakstri fyrir frístundaheimili Hafnarfjarðarbæjar. Horft er sérstaklega til öryggis farþega og bílstjóra með notkun […]
Fyrst sveitarfélaga með endurvottun á jafnlaunakerfi
Enn á ný sýna niðurstöður úttektar á jafnlaunakerfi Hafnarfjarðarbæjar áframhaldandi jákvæða þróun í átt að launajafnrétti innan sveitarfélagsins. Óútskýrður launamunur er ekki lengur til staðar og frávik minnka enn frekar milli úttekta, er nú 0,1%, konum í dag. Hafnarfjarðarbær er fyrsta sveitarfélagið á Íslandi til að fá endurvottun á jafnlaunakerfi en árið 2017 var bærinn […]
Endurbætur á opnum leikvöllum
<<English below>> Í bænum okkar eru fjölmargir leik- og sparkvellir og á hverju ári er unnið að viðhaldi og endurnýjun þeirra. Síðastliðnar vikur hefur m.a. verið unnið að endurbótum á opnum leikvöllum innst i Teigabyggð, Álfholti og Stekkjarhvammi. Á leikvellinum í Teigabyggð var hellulögn löguð, ný net sett í fótboltamörkin, fallvarnarlagi skipt út fyrir malarundirlag […]
Tónlistar- og bæjarhátíðin ,,Hjarta Hafnarfjarðar“ hefst í dag
<<English below>> Tónlistar- og bæjarhátíðin ,,Hjarta Hafnarfjarðar“ hefst í Bæjarbíói í dag en hátíðin hefur á örfáum árum fest sig í sessi í Hafnarfirði og er orðin hluti af sumardagskrá bæði íbúa bæjarins og gesta hans. Af þessu tilefni vígði Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri blómum prýtt hjarta í hjarta Hafnarfjarðar á Strandgötunni en efniviðurinn í skreytinguna […]