Nýtt tennisfélag hefur verið stofnað í Hafnarfirði, TFH, en áður var starfsemi tennisins í bænum innan tennisdeildar BH. Í félaginu eru skráðir 140 iðkendur, þar af 114 fullorðnir og 26 börn. Lítil sem engin aðstaða hefur verið fyrir tennisiðkendur í Hafnarfirði síðastliðin ár og hafa því iðkendur leitað inn í Kópavog eða Reykjavík til að […]
Flokkur: Fréttir
Malbikun á Reykjanesbraut í Hafnarfirði 8. júlí
Vegna malbikunarframkvæmda á suður akbraut Reykjanesbrautar milli Strandgötubrúar og Krýsuvíkurgatnamóta í dag, verður umferð frá Keflavík til Reykjavíkur færð á hjáleið um Krýsuvíkurgatnamót og Ásbraut. Umferð á leið frá Reykjavík til Keflavíkur verður færð á hjáleið um Krýsuvíkurgatnamót. Búast má við töfum á Reykjanesbraut milli Strandgötubrúar og Krýsuvíkurgatnamóta milli kl 16:00 og 18:00. […]
Húsfyllir á hafnfirska forsýningu á Ömmu Hófí
Húsfyllir var á hafnfirska forsýningu kvikmyndarinnar Ömmu Hófí í Bæjarbíói í kvöld. Í ljósi þess að myndin var að nær öllu leyti tekin upp í Hafnarfirði ákvað Hafnarfjarðarbær í samstarfi við Bæjarbíó og framleiðendur myndarinnar að bjóða þeim sem tóku þátt í gerð hennar í Hafnarfirði; fyrirtækjum og einstaklingum sem og bæjarstjórn, starfsfólki Hafnarfjarðarbæjar og […]
Starfsemi í nýsköpunarstofu fer vel af stað
Sumarstörfum fyrir námsfólk og frumkvöðla milli námsanna, 18 ára og eldri, var fjölgað til muna í sumar og hefur hluti hópsins hreiðrað um sig í nýsköpunarstofu í Menntasetrinu við Lækinn. Um er að ræða sumaratvinnuátak Hafnarfjarðarbæjar vegna atvinnuástandsins í þjóðfélaginu, í samvinnu við Vinnumálastofnun. Bæjarblaðið Hafnfirðingur við Idu Jensdóttur, verkefnastjóra í mannauðsteymi Hafnarfjarðarbæjar Hópurinn sem […]
Austurgatan með söguskilti og sögugöngu í Wappinu
Nýtt söguskilti sem reifar sögu Austurgötunnar í Hafnarfirði var vígt við fámenna en góða athöfn á þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga þann 17. júní síðastliðinn. Á sama tíma var sett í loftið ný og áhugaverð söguganga um Austurgötuna. Austurgötuhátíðin hefði átt 10 ára afmæli 17. júní en sökum samkomutakmarkana var hátíðinni frestað til 2021. Söguskiltið, sem stendur […]
Snyrtileikinn mikil hvatning
Hjá Hafnarfjarðarbæ stendur nú yfir árleg leit eftir tilnefningum til viðurkenninga fyrir snyrtileika og fegurð garða, gatna, opinna svæða og lóða í Hafnarfirði. Veittar eru viðurkenningar fyrir fallegasta garðinn, fallegustu götuna og snyrtilegustu stofnanalóðina eða atvinnusvæðið. Senda inn tilnefningu í Snyrtileikann – bentu á þann sem þér þykir bestur Bæjarblaðið Hafnfirðingur ræddi á dögunum við […]
Sameiginlegur plokkdagur vinnuskólanna
Vinnuskóli Hafnarfjarðar og Vinnuskóli Kópavogs taka höndum saman og halda sameiginlegan plokkdag. Þriðjudaginn 7. júlí næstkomandi mun Vinnuskóli Hafnarfjarðar halda í samstarfi við Vinnuskóla Kópavogs sameiginlegan plokkdag. Þá ætla krakkar beggja vinnuskólanna að fara út að tína rusl eða að plokka eins og það er kallað. Hundruðir nemenda Vinnuskóla Hafnarfjarðar munu sjást víðsvegar um bæinn […]
Rafræn birting greiðsluseðla – nýtt fyrirkomulag
Allir greiðsluseðlar frá Hafnarfjarðarbæ verða frá og með 1. ágúst nk. eingöngu birtir rafrænt. Seðlarnir verða aðgengilegir undir netyfirliti / rafrænum skjölum í netbanka. Samhliða birtingu seðlanna stofnast krafa í netbanka. Frá 1. ágúst mun Hafnarfjarðarbær færa alla greiðsluseðla sveitarfélagsins á rafrænt form og þar með hætta prentun reikninga. Fyrst og fremst er ákvörðun tekin […]
Ferðagjöf til þín
Allir einstaklingar 18 ára og eldri hafa fengið Ferðagjöf að andvirði 5.000 kr. frá stjórnvöldum. Gjöfin er liður í því að styðja við bakið á íslenskri ferðaþjónustu í kjölfar kórónuveirufaraldurs og efla þannig íslenska ferðaþjónustu sem og hvetja landsmenn til að eiga góðar stundir á ferðalagi víðsvegar um landið. Fyrst þarf að sækja Ferðagjöfina með […]
Leiðbeiningar um heimsóknir vegna Covid19
Til að gæta fyllsta öryggis og í ljósi þeirrar stöðu sem komin er upp vegna innanlandssmita og mögulegrar hópsýkingar á höfuðborgarsvæðinu hefur Hafnarfjarðarbær ákveðið að gefa út tilmæli um heimsóknir í þjónustuíbúðir fyrir aldraða, á hjúkrunarheimili og búsetukjarna fyrir fatlað fólk gagngert til að vernda okkar viðkvæmustu hópa. Fólk sem hefur verið erlendis á EKKI […]