Jólasund er góð samverustund Posted desember 20, 2019 by avista Sundlaugar Hafnarfjarðarbæjar eru þrjár og hafa þær allar sín sérkenni. Upplýsingar um allar sundlaugarnar og staðsetningu þeirra er að finna HÉR Opnunartími sundlauganna yfir jólahátíðina 2019 er sem hér segir: Ásvallalaug Suðurbæjarlaug Sundhöll Hafnarfjarðar 23. desember 06:30 – 17:00 06:30 – 17:00 06:30-17:00 24. desember 06:30 – 13:00 06:30 – 13:00 06:30 – 11:00 […]
Árleg jólagjöf Áslandsskóla til Mæðrastyrksnefndar Posted desember 20, 2019 by avista Undanfarin þrettán ár hefur skólasamfélagið í Áslandsskóla styrkt Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar með framlögum fyrir jólin. Ásta Eyjólfsdóttir formaður nefndarinnar kom á jólaskemmtun í Áslandsskóla á dag, föstudaginn 20. desember, og tók við framlagi úr hendi Leifs S. Garðarssonar skólastjóra. Í ár söfnuðust 239.125.- krónur sem runnu að sjálfsögðu óskertar til nefndarinnar. Á þrettán árum hefur skólasamfélagið […]
Bókagjöf til skólabókasafna – lestur er lífsins leikur Posted desember 20, 2019 by avista Bókasöfn leik- og grunnskóla Hafnarfjarðar fengu nú fyrir jólin fjármagn að gjöf frá sínu sveitarfélagi með það fyrir augum að þau geti bætt við bókakost sinn og bætt við nýjum og spennandi bókum úr jólabókaflóði jólanna 2019. Það er öllum bókasöfnum mikilvægt að vera í takt við tímann og það sem á sér stað í […]
Rafræn vöktun á helstu akstursleiðum Posted desember 19, 2019 by avista Hafnarfjarðarbær, lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Neyðarlínan ohf. hafa gert með sér samkomulag um kaup, uppsetningu og rekstur á öryggismyndavélakerfi í sveitarfélaginu. Kerfinu er einungis ætlað að þjóna þörfum lögreglu og annarra neyðaraðila og fer um notkun þess og aðgang að gögnum úr kerfinu samkvæmt reglum lögreglu og Persónuverndar. Töluverð umræða hefur verið um slíka vöktun […]
Jólaskraut og jólanammi frá Lionsklúbburinn Kaldá Posted desember 19, 2019 by avista Jóhanna Valdemarsdóttir og Lillý Jónsson frá Lionsklúbbnum Kaldá komu færandi hendi í vikunni með jólaskraut og jólanammi. Gjafirnar fengu fatlað fólk sem nýtir þjónustu á Hæfingarstöðin í Bæjarhrauni og ungmenni í skammtímavistun á Hnotubergi. Þessar gjafir vöktu að vonum mikla lukku og er Lionsklúbbnum færðar góðar þakkir fyrir.
Barnaskóli Hjallastefnunnar syndir í Hrafnistu í vetur Posted desember 19, 2019 by avista Sundkennsla nemenda í Barnaskóla Hjallastefnunnar í Hafnarfirði fer fram á Hrafnistu í vetur. Fulltrúar Hafnarfjarðarbæjar, Hrafnistu og Barnaskólans undirrituðu samkomulag í vikunni þar sem tryggt er að nemendur Barnaskólans geti notað sundlaugina í Hrafnistu í vetur. Á Hrafnistu er að finna kjöraðstæður fyrir börn og kennara að ógleymdu frábæru fólki sem býr þar og starfar […]
Útboð á sérhæfðri akstursþjónustu – hagræðing og skilvirkni Posted desember 19, 2019 by avista Nærþjónusta sem byggir á trausti og persónulegri þjónustu Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar í dag voru lögð fram til kynningar tilboð sem bárust í útboð um sérhæfða akstursþjónustu í Hafnarfirði sem nær til þjónustu við fatlað fólk og eldri borgara í sveitarfélaginu. Tilboð bárust frá fimm aðilum og er lægsta tilboð 420.623.100.- kr undir kostnaðaráætlun verkefnis […]
Deila sköpun sinni með nærsamfélaginu Posted desember 18, 2019 by avista Valhópur í myndmennt við Öldutúnsskóla hefur verið að skoða myndlist út frá fleiri hliðum en hinu hefðbundna málverki eða skúlptúr sem finna má í listasöfnum og galleríum um heim allan. Hópurinn hefur verið að vinna með listsköpun sem tengir samfélagið og nærumhverfið. Með því að gefa vinnu sína og deila sköpun sinni með samfélaginu má […]
Fyrstu leigjendurnir flytja inn fyrir jólin Posted desember 18, 2019 by avista Öllum leiguíbúðum við Hádegisskarð í Skarðshlíð hefur verið úthlutað Rúmlega 120 umsóknir bárust í þær 10 íbúðir sem auglýstar voru lausar til umsóknar við Hádegisskarð í Skarðshlíð. Þessum leiguíbúðunum er ætlað að tryggja tekjulægri einstaklingum og fjölskyldum aðgengi að öruggu húsnæði í langtímaleigu. Opnað var fyrir umsóknir í upphafi október og rann umsóknarfrestur út um […]
Hellnahraun – Rauðhella 2 Posted desember 16, 2019 by avista Skipulags- og byggingarfulltrúi Hafnarfjarðar, samþykkti á fundi sínum þann 6.11. 2019, að grenndarkynna tillögu um breytingu á deiliskipulagi Hellnahrauns 1. áfanga vegna lóðarinnar að Rauðhellu 2 í Hafnarfirði í samræmi við 2. mgr. 43. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í að byggingarreitur er stækkaður og nýrri innkeyrslu á lóðinni norðanverðri er bætt við. Að […]