Á fyrri samráðsfundi af tveimur vegna skipulagsvinnu er snýr að Vesturbæ Hafnarfjarðar þann 5. mars var farið yfir hugtakið Verndarsvæði í byggð, hvað í því felst og hvernig það á við um Vesturbæinn. Jafnframt var gerð grein fyrir þeirri fornleifa- og húsaskráningu sem gerð hefur verið á svæðinu. Hér er hægt að sækja glærukynningu frá fundinum: Vesturbær […]
Flokkur: Fréttir
Nýtt stofnræsi á Völlum
Á fundi sínum þann 17. desember 2019 samþykkti skipulags- og byggingarráð að fyrirhugaðar breytingar á aðal- og deiliskipulagi er ná til svæðis innan Vallahverfis yrðu sendar skipulagsstofnun til umsagnar. Gerði stofnunin ekki athugasemdir við að skipulagsbreytingarnar yrðu auglýstar samhliða, samanber heimild samkvæmt 2. mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Framangreint var lagt fram í bæjarstjórn til […]
Kjarasamningur undirritaður og verkfalli aflýst
Kjarasamningur var undirritaður á milli Sambands íslenskra sveitarfélaga og bæjarstarfsmannafélaga innan BSRB rétt fyrir miðnætti í kvöld hjá Ríkissáttasemjara. Verkfalli félaganna gagnvart Sambandi íslenskra sveitarfélaga hefur því verið aflýst. Samningurinn tekur til um 7000 starfsmanna sveitarfélaga um allt land og gildir til 31. mars 2023. Starfsemi sveitarfélagsins mun því haldast óbreytt og ekki koma til […]
Árshátíð Hafnarfjarðarbæjar frestað – fyrirbyggjandi aðgerðir ítrekaðar
Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir neyðarstigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni vegna kórónuveiru (COVID-19). Fyrstu smit innanlands voru staðfest í gær og eru þau orðin a.m.k. fjögur talsins. Í kjölfarið var ákveðið að lýsa yfir neyðarstigi almannavarna. Það er gert m.a. á grunni þess að sýkingin er nú farin að breiðast út innanlands. Neyðarstjórn Hafnarfjarðarbæjar hefur […]
Lokun á þjónustu og starfsemi fyrir fólk í viðkvæmri stöðu
Hafnarfjarðarbær hefur tekið ákvörðun um lokun á starfsstöðvum sveitarfélagsins sem halda úti þjónustu og starfsemi fyrir fólk sem er í viðkvæmri stöðu eða með undirliggjandi sjúkdóma. Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir neyðarstigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni vegna kórónuveiru (COVID-19) og er ákvörðun tekin með hliðsjón af þeirri breytingu. Allir hlutaðeigandi verða látnir vita um leið […]
Ókeypis heilsufarsmælingum frestað
Ákveðið hefur verið að fresta um óákveðinn tíma ókeypis heilsufarsmælingum í Hafnarfirði sem áttu að fara fram laugardagana 14. og 21. mars. Ákvörðun er tekin í ljósi mikils álags á heilbrigðiskerfið í heild sinni þessa dagana. Auglýsing og kynning fer af stað aftur þegar nýjar dagsetningar hafa verið ákveðnar. Fyrirfram þakkir fyrir sýndan skilning.
Áhrif á þjónustu ef til verkfalls kemur
Mikilvægt er að allir hlutaðeigandi fylgist vel með fréttum af fyrirhuguðu verkfalli. Öll starfsemi sveitarfélagsins mun haldast óbreytt ef ekki verður af verkfalli. Fyrirhugað verkfall félagsmanna hjá Starfsmannafélagi Hafnarfjarðar og BSRB hefst mánudaginn 9. mars. Fyrirhuguðum verkfallsaðgerðum má skipta í tvo hluta. Annars vegar munu félagsmenn leggja niður störf á fyrirfram ákveðnum dögum þ.e. dagana […]
Viltu vera vistforeldri?
Barnavernd Hafnarfjarðar leitar að tveimur fjölskyldum sem eru tilbúnar að taka á móti börnum sem vista þarf utan heimilis í skemmri tíma. Hlutverk vistforeldra er að veita börnum móttöku, þar með talið í bráðatilvikum til að tryggja öryggi barnanna, greiða vanda þeirra eða til könnunar á aðstæðum þeirra. Þegar barn er á heimilinu er lögð […]
Nemendur perla af krafti
Öskudagur nýttur í gott málefni Nemendur og kennarar í unglingadeild Áslandsskóla ákváðu að nýta öskudag til að leggja verkefninu Perlað af krafti lið. Verkefnið er ein helsta fjáröflunarleið Krafts stuðningsfélag þeirra sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra. Ein helsta fjáröflunarleið Krafts er sala á perluarmböndum með áletruninni „Lífið er núna“. Armböndin eru eingöngu framleidd […]
Bæjarstjórnarfundur 4. mars
Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 3. mars. Formlegur fundur hefst kl. 14:00 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34. Hér er hægt að nálgast dagskrá fundar. Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu