– nýr verkefnastjóri ráðinn Næstu skref í uppbyggingu á Lífsgæðasetri St. Jó voru mörkuð á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar sl. miðvikudag þegar samþykkt var að klára framkvæmdir utanhúss í sumar auk þess að bæta aðgengi og lagfæra handrið í stigahúsi innanhúss. Þann 5. september nk. er eitt ár liðið frá því að Lífsgæðasetur St. Jó var […]
Flokkur: Fréttir
Bærinn styrkir leikskólakennaranám
Í fimm ár hefur Hafnarfjarðarbær boðið ófaglærðu starfsfólki á leikskólum styrki til að stunda nám í leikskólakennarafræðum. Jenný Dagbjört Gunnarsdóttir, þróunarfulltrúi leikskóla hjá Hafnarfjarðarbæ, var leikskólakennari í 21 ár og segir það afar fjölbreytta, skemmtilega og gefandi vinnu. Hún segir ýmsar leiðir í boði fyrir þau sem áhuga hafa á að verða leikskólakennarar, s.s. það […]
Eins og bíómynd án handrits
Dögg Gunnarsdóttir, skólastjóri Lækjarskóla, bjó í Svíþjóð í sjö ár og þegar samkomubannið vegna COVID-19 skall á í mars ráðfærði hún sig ekki bara við íslenska kollega sína heldur líka sænska og gerði lista yfir það sem hún taldi þurfa að hafa í huga. Til samskipta við nemendur og forráðamenn notuðu kennarar síma, tölvupóst, hópa […]
Gámar fyrir garðaúrgang við grunnskóla 21. – 25. maí
Garðaúrgangur sóttur í hverfisgáma Sú breyting verður á hreinsunardögunum í ár að settir verða upp gámar fyrir garðúrgang við alla grunnskóla sveitarfélagsins. Gámarnir verða við skólana frá morgni fimmtudagsins 21. maí til kl. 17 sunnudaginn 24. maí. Íbúar í Hafnarfirði eru hvattir til að nýta sér þjónustuna eða koma pokunum beint á Sorpu. Bent er […]
Opið í sund á uppstigningardag frá kl. 8-17
Ásvallalaug og Sundhöll Hafnarfjarðar verða opnar á morgun, uppstigningardag, frá kl. 8-17. Í ljósi fjöldatakmarkana og umfangsmikilla viðhaldsframkvæmda í Suðurbæjarlaug verður opið um helgar í Sundhöll Hafnarfjarðar til og með 14. júní nk. Sundlaugargestum er bent á að hægt er að fylgjast með rauntímafjölda í hverri laug á vef bæjarins. 32 einstaklingar mega vera ofan […]
Hlaðvarp Bókasafns Hafnarfjarðar – fjölbreytt og fróðlegt
Nýtt hlaðvarp Bókasafns Hafnarfjarðar hefur í grunninn þann góða tilgang að koma á framfæri öllu því efni sem starfsfólki bókasafnsins þykir áhugavert og er til þess fallið að vekja umræðu og umfjöllun um áhugaverða málaflokka og mál sem m.a. tengjast safnkosti bókasafnsins, viðburðum á vegum safnsins eða öðru því sem í gangi er í kringum […]
Komdu í hrausta liðið! Hreyfivika UMFÍ 25. – 31. maí
Nú styttist heldur betur í stuðið, vorboðann ljúfa. Hreyfivika UMFÍ hefst 25. maí næstkomandi og stendur til 31. maí. Boðberar hreyfingar í Hreyfiviku UMFÍ eru byrjaðir að undirbúa allskonar viðburði og leiki um allt land og má því búast við gríðarlegu sprikli í vikunni. Boðberar hreyfingar Á síðasta ári tóku fyrirtæki landsins í fyrsta sinn […]
Ásvallalaug og Sundhöll opna að nýju 18. maí
Ásvallalaug og Sundhöll Hafnarfjarðar opna að nýju mánudaginn 18. maí og við tekur hefðbundinn opnunartími á þessum stöðum með smá viðbótum. Suðurbæjarlaug opnar hins vegar ekki strax sökum umfangsmikilla viðhaldsframkvæmda. Sundlaugargestir eru áfram beðnir um að fara í einu og öllu eftir sóttvarnarreglum og sýna því skilning að til að byrja með verður einungis hægt […]
Hamraneshverfið heillar – mikil eftirspurn eftir lóðum
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar úthlutaði í gær sex lóðum fyrir 148 íbúðir í fyrsta áfanga uppbyggingar í Hamranesi, 25 hektara svæði við uppland Hafnarfjarðar. Sóttist einn byggingaraðili eftir öllum sex lóðunum en fjórir aðilar hlutu úthlutun að þessu sinni. Um er að ræða úthlutun þriggja lóða til Byggingarfélags Gylfa og Gunnars og stakra lóða til Fjarðarmóta ehf., […]
Plast áfram á endurvinnslustöðvar fram í júní
Meðfylgjandi tilkynningu er að finna á vef Sorpu Kári vindflokkari fyrir plast verður úr notkun í maí vegna uppsetningar á nýrri flokkunarlínu í móttökustöð. Í byrjun júní 2020 tekur SORPA nýja gas- og jarðgerðarstöð í notkun í Álfsnesi (GAJA) en þar verður lífrænum hluta heimilisúrgangs umbreytt í jarðvegsbæti og metan. Til að mæta þörfum vinnslunnar […]