Haustið 2019 verður tekið upp nýtt fyrirkomulag við móttöku grunnskólanemenda af erlendum uppruna í Hafnarfirði sem felst í því að lagt verður stöðumat fyrir grunnskólanemendur af erlendum uppruna þegar þeir hefja skólagöngu í sveitarfélaginu. Stöðumatið er að sænskri fyrirmynd og var þýtt og staðfært með leyfi sænskra skólayfirvalda með milligöngu Menntamálastofnunar. á viðtal við […]
Flokkur: Fréttir
Hlaðvarpið VITINN – nýr þáttur er kominn í loftið!
Hafnarfjarðarbær kynnti nýlega til sögunnar nýja hlaðvarpið Vitann. Í fyrsta þætti Vitans ræddi Sigurjón Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs við Björn Pétursson bæjarminjavörð um Byggðasafn Hafnarfjarðar. Nú er annar þáttur kominn í loftið, spjall við Evu Michelsen verkefnastjóra Lífsgæðaseturs St. Jó. Ráðgert er að setja nýjan þátt í loftið vikulega. Í Vitanum er spjallað við áhugaverða […]
Suðurbæjarlaug lokuð um helgina
Sundlaugarsvæði Suðurbæjarlaugar verður lokað um helgina. Viðhaldsframkvæmdum, sem staðið hafa yfir alla vikuna, hefur seinkað og er ráðgert að laugin opni að nýju mánudaginn 23. september. Tekur þetta til allra lauga og klefa á svæðinu. Við þökkum sýndan skilning og bendum á að Ásvallalaugin er opin alla helgina. Föstudag frá kl. 6:30 – 20:00, laugardag […]
Námsaðstoð á Bókasafni Hafnarfjarðar
Námsaðstoð Rauða krossins á Bókasafni Hafnarfjarðar er aftur komin á fullt eftir sumarfrí. Aðstoðin er fyrir öll börn í 1.-10. bekk og fer fram alla þriðjudaga frá kl. 15-17. Markmiðið að styrkja börn í námi Verkefnið Námsaðstoð Rauða krossins er unnið í samvinnu Bókasafns Hafnarfjarðar og Rauða krossins í Hafnarfirði og Garðabæ. Heimavinnuaðstoðin er fyrir […]
Plastaþon – hugmyndasmiðja um lausnir á plastvandanum
Umhverfisstofnun stendur fyrir Plastaþoni dagana 27. og 28. september næstkomandi. Plastaþon er hugmyndasmiðja fyrir þá sem brenna fyrir umhverfismálum og nýsköpun og er öllum velkomið að skrá sig til leiks. Þátttakendur mynda teymi og vinna saman að lausnum við þeim áskorunum sem heimurinn stendur frammi fyrir varðandi ofnotkun á plasti. Á meðan Plastaþoninu stendur fá […]
Drög að skýrslu um skipulag miðbæjar – frestur framlengdur
Frestur til athugasemda við drög að skýrslu frá starfshópi um skipulag miðbæjar Hafnarfjarðar hefur verið framlengdur til og með 4. október næstkomandi. Fundargerð frá íbúafundi 17. september er að finna HÉR Til og með 4. október 2019 gefst íbúum og öðrum áhugasömum tækifæri til að senda inn athugasemdir og viðbætur við fyrirliggjandi drög að skýrslu […]
Hreystivöllur á Hörðuvöllum
Á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs þann 27. febrúar 2019 var samþykkt að kynna tillögu að hreystivelli og almennu leiksvæði fyrir yngri börn við Ásvallalaug. Athugasemdir bárust og m.a. var bent á að hreystibraut yrði á nýrri skólalóð Skarðshlíðarskóla. Völlur færður á Hörðuvelli Á fundi fræðsluráðs þann 10. maí sl. var lagt til að völlurinn yrði […]
Opið fyrir umsóknir í Jólaþorpið
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði 2019. Sem fyrr vill Jólaþorpið fá til liðs við sig einstaklinga, samtök og fyrirtæki sem hafa til sölu gæðavöru á góðu verði og fjölbreytt úrval varnings með loforði um líf og jólafjör í sölubásnum. Í Jólaþorpinu verða um 20 skreytt einingahús sem eru 5,8 […]
Bæjarstjórnarfundur 18. september
Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 18. september. Formlegur fundur hefst kl. 14:00 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34. Hér er hægt að nálgast dagskrá fundar. Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu
Suðurbæjarlaug lokuð vegna viðhaldsframkvæmda
Sundlaugarsvæði Suðurbæjarlaugar verður lokað frá og með mánudeginum 16. september til og með föstudeginum 20.september vegna viðhaldsframkvæmda. Tekur þetta til allra lauga og klefa á svæðinu. Gym H líkamsræktin í lauginni verður opin á þessu tímabili. Við þökkum sýndan skilning og bendum á að Ásvallalaug er opin alla virka daga og um helgar og Sundhöll […]